mánudagur

Við getum sofið, á morgun...

Ég ætla nú ekkert að blogga mikið um evróvision, fannst þetta voðalega týpískt vinningslag og mörg betri og mörg verri. Punktur. Siv Emma var hinsvegar að útskrifast á laugardaginn og fær hún mínar innilegustu hamingjuóskir!
Og svo var evróvisionball í Björkinni! Strákarnir ætluðu að leggja af stað um hálftólf, komu að ná í mig um hálfeitt... Stundvísir drengir...:-þ Allavega. Þeir voru búnir að ná í Lóu svo við brunuðum bara beint á Hvolsvöll og inn í Björkina þar sem Kúngfú voru að spila. Þar voru nú ekki margir, en fjölgaði þegar leið á kvöldið. Mikið gaman þegar Alla mætti á svæðið! Og eins og við er að búast djömmuðum við eins og sannir Eyfellingar...;) Ekkert nema gott um þetta djamm að segja, allir í góðu skapi og hljómsveitin góð! Nema hvað, svo erum við Alla að dansa og fíbblast upp við sviðið þegar söngvarinn stígur niður og fer að dansa við okkur! Nema hvað, svo kemur Eyvi og fer að dansa við Öllu, og söngvarinn kemur niður til mín, tekur utan um mig, rekur míkrafónin næstum alveg upp í eyrun á mér og kyssir mig á kinnina! Á líklega eftir að hlæja í hvert einasta skipti sem ég heyri “Stjörnuhrap” næstu árin... Allavega. Ballið kláraðist og ég dreif mig út í bíl þar sem ég, Lóa, Tóti og Palli biðum eftir Jónasi sem var lentur á spjalli við nafna sinn frá Svíðþjóð. Þegar hann loksins hafðist inn í bíl brunuðum við á Rauðalæk í húsið þeirra Öllu og Eyva. Þar spjölluðum við og borðuðum ís langt fram á morgun! Það var frekar erfitt að sofna í steikjandi hita og með sólina skínandi inn um gluggann, þegar ég kom heim um hálfsjö...

Hvað er þetta annars með mig og djammsms? Hef nú svosem ekki gert neitt mikið af mér upp á síðkastið, allt voða saklaust bæði á miðvikudaginn og helgina, en halló, ásláttarvillur... Að vissu leyti mjög þægilegt að hafa svona “sent messages” í símanum, en svo fer maður að skoða það og skammast sín niður í tær! Yfirleitt fylgja sms frá mér öllum stafsetningar og málfræðireglum, og það er örugglega ætlunin líka þegar litla táin er farin að fyllast, en með misjöfnum árangri... “ætlardu b bball? Eda qarty?” “Kad segr thhu anns? ´eg var a sveitabbali:) “ Eins og ég sagði, ekkert alvarlegt núna nema ásláttarvillur, enginn vælutónn eða miklar játningar í gangi, en samt, það má nú alveg einhver stoppa mig...

Já, það eru breytingar í gangi, blómið hætti að birtast svo ég dustaði rykið af tölvukunnáttu minni og setti inn þessa forláta mynd af mér... Svo kvörtuðu einhverjir undan smáu letri svo ég stækkaði það aðeins:)