sunnudagur

Lady and Bird

Vááá!!! Ég er enn að ná mér eftir tónleikana! Sit við tölvuna og hlusta á Keren Ann og næ því ekki alveg að við höfum sungið með þeim! Þetta var magnað! Uppselt og fullt af frægu fólki í salnum! Glansaði meira að segja á skallann á Bubba á fremsta bekk! Svo heppnaðist þetta líka svona rosalega vel! Sátum í græna herberginu að reyna að ná okkur niður eftir tónleika og hver stórstjarnan á eftir annarri labbar inn og segir "vá hvað þetta var flott hjá ykkur, þið voruð æðislegar!" Og vá, að heyra Barða og Keren þegar við vorum að kveðja, "Sjáumst stelpur, see you soon!" VÁÁÁ! :-D Það var æði! Líka þegar við Maja löbbuðum fram hjá óperunni á föstudaginn þegar þau voru að fara út í bíl og kölluðu til okkar, "hæ stelpur!" Vííí...

Sindri spurði mig hvort Barði væri eins furðulegur í persónu og hann virðist vera? Nei. Bæði Barði og Keren eru svo næs! Barði var svo stressaður fyrir tónleikana, alveg að farast, "það versta sem ég geri er að koma fram læf" og svo þakkaði hann okkur svo mikið fyrir og sagði að við værum besti kór í heimi! Eða var það Mikael frakkinn sem útsetti þetta? Ég man það ekki, annarhvor sagði þetta:-þ Hann er dáldið rólegur, mjög rólegur, en ekkert furðulegur samt! Bara algjör dúlla!

Ég á eftir að eyða næstu vikum í að ná mér niður eftir þetta, þetta var magnað!!:)