miðvikudagur

Ball...

Já, ég gefst ekki upp þrátt fyrir dræmar viðtökur. Það væri nú í lagi að kommenta. Allavega. Ég ætla ekki að væla. Rakst á gamla vinkonu að austan áðan. Það er að segja, hún býr á Flúðum núna. Ég fékk nett sjokk þegar ég sá hana, því hún er komin 8 og hálfan mánuð á leið! Sjitt! Þó að Hjalti væri búinn að segja mér það þá var svo mikið sjokk að sjá hana! Hún er ári yngri en ég og svo er hún held ég álíka mikil á breiddina núna og hæðina, hún er svo stutt... Svo skrítið, mér finnst ég ekkert hafa elst síðustu ár, allavega ekki síðustu 2 árin, svo sá ég hana og eltist um þessi tvö ár á stundinni! Mér fannst nógu skrítið þegar ég fattaði í morgun að Jónas væri 23 ára í dag! Til hamingju með afmælið aftur:)

Allavega. Ég er komin í bæinn, ætla á lokaballið í kvöld. Er reyndar tæp mæting skilst mér, en ég, Sísa og Leifur getum nú djammað sjaman fram á rauða nótt! Efast reyndar um að djammið í kvöld verði eins og hjá þeim um daginn, en maður veit nú aldrei þegar Sísa er á ferð...;)

Við Lilja erum víst einar hér. Jóna Finndís að öllum líkindum fyrir norðan. Þaðan hef ég reyndar mjög góðar fréttir! Var að eignast lítinn frænda í gær, á Svangrund! Rifnaði alveg úr stolti þegar mamma spurði hverjum hann líktist og Fríða svaraði: "Ja, það er helst að hann líkist henni Dísu Boggu!":D