þriðjudagur

Brunasár og gúrka

Lokamatarboð LMMH var hjá honum Hjalta á föstudaginn. Það var akkúrat hann, og Leifur og ég sem skipulögðum það. Ákváðum þar sem þetta væri nú síðasta boðið í vetur að hafa aðeins fleiri á gestalista en venjulega og enduðum held ég með tuttugumanna lista... Það reyndar komust ekki allir, mættu tólf að okkur meðtöldum. Við Leifur skruppum svo í bónus og lékum lítil sæt hjón að versla í matinn, alveg að springa úr hlátri (elskan, vantar ekki líka klósettpappír? Ha, jú dúllan mín, það var rétt! og e-ð þannig...)

Jæja, Bryndís og Gummi sögðust víst ekki komast fyrr en eftir 8 og sömuleiðis Kristrún, svo við ákváðum að hafa ekkert mat fyrr en hálf9 eða svo. Nema hvað, upp úr 7 byrja allir að mæta og við bara í góðum fíling að hlusta á Sæma syngja tenórinn í Sacred Concerts og svo tóndæmi úr tónlistarsögu fyrir áramót... Byrjum í rólegheitunum að skera grænmeti, og svo aðeins meira stress í gangi, og svo aðeins meira... Þangað til allt fer í klessu! Okkur Sölva tekst í sameigingu að hella hálfu kílói af spagettí í vaskinn, ofninn óvart á blæstri og bakar brauðin þessvegna aðeins betur en ætlunin var, ég brenni mig á skúffunni og allt mögulegt fer úrskeiðis! Síðustu tíu mínútur eldamennskunnar! Ég kenni stressinu sem myndast þegar allir mæta fyrr en áætlað er og allt í drasli í eldhúsinu og enginn matur tilbúinn...

Maturinn heppnaðist hins vegar bara nokkuð vel! Bragðaðist alla vega ágætlega held ég, og rauðvínið var alveg meira en nóg, skildum alveg heila flösku eftir meira að segja! Flestir fóru svo fljótlega eftir eftirmatinn en við hin fórum að leita að spilastokk og spiluðum gúrku og fleira langt fram eftir nóttu. Ef þið bara vissuð...

Ég er reyndar öll blá og marin eftir þetta matarboð! Sölva tókst að koma því inn í samræðurnar hversu mikið mig kitlaði og ég fékk nokkrum sinnum að finna fyrir því... Rakst þar af leiðandi nokkrum sinnum utaní, auk þess sem ég fæ mjög auðveldlega marbletti... Er með mar á kinninni, á "hliðunum á mér", löppunum, og puttunum! En það var allt bara gaman, takk allir fyrir gott kvöld:)