sunnudagur

Meira djamm?

Jújú, fleiri djammsögur hér á ferð! Var nefnilega niðri í óperu bæði á föstudagskvöldið og laugardagskvöldið svo það var stutt að fara... Fór semsagt með Maju af æfingu á föstudaginn og við kíktum á restina af aðalfundi feministafélagsins þar sem Ugla, Elín, Rakel, Sigga og Marta voru. Og fullt af öðrum konum líka og nokkrum körlum. Þaðan fórum við svo á kaffi Viktor og svo á Ara í ögri. Sátum heillengi bara að spjalla og drekka bjór, en svo röltum við Maja og Elín til Elínar og stoppuðum aðeins þar. Maja ákvað að fara heim en við Elín fórum hins vegar aftur niður í bæ! Hittum Hafdísi vinkonu hennar og fórum á kúltúr, drukkum meiri bjór og töluðum heilmikið og hlustuðum á tónlistina. Já, aldrei þessu vant steig ég ekki dans í djammferð! Þetta var meira stillt djamm, tsjillað og spjallað:) Við vorum á kúltúr þangað til þeir byrjuðu að stóla upp, en þá ákvað Hafdís að fara heim. Við Elín gáfumst samt ekki upp, en fórum samt fljótlega í sitthvora áttina þegar hún fór á kofann en ég fór og hitti Kris á 22. Var þar í svona klukkutíma, en þá var klukkan líka að verða 5 svo við röltum upp á Hlemm og tókum leigubíl heim... Eins og ég sagði, bara rólegt djamm:)

Ég get hins vegar ekki sagt að gærkvöldið hafi verið eins rólegt... Maja, Sigurborg og ég fórum til Guðrúnar sem var að útskrifast í gær eftir tónleikana og þar var á boðstólunum frítt áfengi... Hvítvín, rauðvín, freyðivín, bjór, og fullt fullt af krökkum! Mjög skemmtilegur félagskapur! Hljómsveitin Byssupiss tók lagið við miklar vinsældir, ég Maja og sigurborg sungum hluta af dagskrá Lady and Bird við undirleik Uglu og Robba, og allir höfðu það mjög gaman! Fórum þaðan yfir til Jökuls í partý þar sem var enn fleira fólk og ég hafði varla undan að faðma alla... Maður þarf nú að heilsa! Ég og Sigurborg vorum orðnar ansi skrautlegar þarna og skemmtum okkur mjög vel! Um eittleytið komu foreldrar Jökuls hins vegar heim og enduðu partýið með þessari líka frábæru ræðu! Hætta skal leik þá hæst hann stendur og hananú, við héldum niður í bæ. Ég er nú reyndar með heilmikið samviskubit því við týndum Sigurborgu og Robba á leiðinni... Ég, Maja, Elín, Rakel og Unnur héldum samt á kofa Tómasar frænda þar sem ég var, mér sjálfri til mikillar undrunnar, ekki spurð um skilríki! Ég sem var búin að læra kennitöluna hennar Völu, að ég væri Guðmundsdóttir og naut alveg hundrað prósent! Ojæja, ekki kvarta ég... Við vorum ekkert svaklega lengi á kofanum heldur röltum á Kúltúr og vorum þar það sem eftir var, held ég...
Í dag vaknaði ég og sá að ég hef hringt alveg fullt fullt í gær! Skoðaði líka send skilaboð, og er mjög hissa á réttri stafsetningu og áslætti! Ég hef vandað mig! :) Allavega. Helgin var mjög skemmtileg, bæði föstudags og laugardagskvöld, þau voru bara öðruvísiskemmtileg...