Rétt í þessu fékk ég mjög svo undarlegt símtal. Einhver könnun í gangi, allt í lagi með það, en spurningarnar! Hvort lítur þú á Byko sem karl eða konu? En Húsasmiðjuna? Lítur einhver á byggingavöruverslanir sem karl- eða kvenkyns? Halló, ég var að vinna í einni þannig og þekki alveg fullt af fólki í bransanum, en aldrei nokkurn tímann hefur mér dottið í hug að kynkenna byggingavöruverslanir...
Er að setja fullt fullt af myndum inn á netið, en það tekur alveg alltof langan tíma... Samt skemmtilegar myndir! Síðasti skóladagur (dimission), Gradualeárshátíð og matarboð (ok, allavega eftir að ég mundi eftir myndavélinni...). Bíðið spennt...;)
