Þetta er áhugavert. Hvað finnst ykkur?
Ég ætla hins vegar hvetja alla til að mæta á þetta annað kvöld. Þetta eru akkúrat alveg hreint magnaðir tónleikar á Listahátíð, haldnir í óperunni klukkan 20.00. Miðasalan er á netinu. Ég sver það, þetta er geðveikt flott! Þetta er líka ástæða næstum ótæpilegra kóræfinga í þessari viku. Byrjuðum á þriðjudaginn, en þá voru Barði, Keren og Mikael (frakkinn sem útsetur allt) ekki komin og engar nótur svo við hlustuðum bara. Á miðvikudaginn vorum við svo frá 19-22:30, og í gær toppuðum við allt, vorum frá 18-23:30! Sem gerir fimm og hálfan tíma! Það er svosem allt í lagi, ekki oft sem maður fær að syngja Child in Time og Stephanie Says... Það sem er samt mest öðruvísi við þetta er að það eru engar nótur. Mikael sagðist ekki hafa haft tíma, og svo hélt hann að við gætum ekki lesið nótur (franski kórinn gat það víst ekki...)! Þannig að við lærum þetta bara með eyranu og textanum. Mjög góð æfing!
Ég er ein heima. Verð ein heima fram á sunnudag. Mamma hringir reglulega til að minna mig á að borða. Ég er samt næstum búin að snúa sólarhringnum við. Samt ekki svo, ég vakna enn um hádegi... Kvöldin og næturnar geta samt verið tómleg. Sérstaklega afþví ég verð dáldið paranoid eftir smá tíma, finnst ég alltaf heyra einhver skrítin hljóð og e-ð... Það er samt alveg búið að bjarga mér frá því þessar tvær nætur sem ég hef verið ein:) Búin að fá heimsóknir og fara í heimsóknir! Fór með Maju og Laufeyju til Sigurborgar og Robba í gær eftir æfingu, þar beið Robbi með heimabakaða pizzu handa okkur, hann fær stórt prik fyrir mjög góðar pizzur!! Svo vorum við þar bara að spjalla og þannig og ég kom heim hálf3... Og nóttina þar áður fór ég bara ekkert að sofa, en sofnaði reyndar hálfníu um morguninn og svaf til hádegis... Bara letilíf á mér:)
Allavega. Litli bróðir minn á afmæli í dag, hann er 11 ára! Þau eldast svo hratt... Ætla að vaska aðeins upp og kíkja svo til hans. Svo er æfing í óperunni í kvöld og eftir hana er ekkert planað, en þó aldrei að vita nema maður kíki aðeins út á lífið, kemur bara í ljós...:)
föstudagur
Deep purple á hörpu...
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|