Þá er þessi önn búin. Með öllu. Og núna er ég búin með 121 einingu á minni menntaskólagöngu. Nokkuð gott. Þessi önn fór svona nokkurn veginn eins og ég bjóst við. Fékk 8 í báðum enskuáföngunum, 9 í frönsku 603 (bjóst nú reyndar ekki við nema 8 þar!), 9 í íslensku (óþægilega nálægt 10 þar!), 8 í líkamsrækt (missti af göngu...) og 7 í sögu. Þar lækkaði mætingin mig, því heildareinkunn var margfölduð með mætingarprósentu, og þó ég hafi verið með 94% þá er það svo fljótt að koma... Svo auðvitað staðist bæði í yndislestri og kvikmyndafrönsku. Hífði mætinguna mína aftur upp í 10,fékk 8,5 fyrir söguritgerðina og 9,5 fyrir þetta! Þetta er akkúrat íslenskuverkefnið okkar Elínar og Uglu sem ég hvet ykkur til að lesa og kommenta. Sérstaklega ef þið hafið lesið bækur Josteins Gaarder eða finnst gaman að heimspeki. (Virkar best í Explorer...)
Dagurinn byrjaði ekki vel. Vaknaði klukkan 7 með heljarinnar blóðnasir. Þær héldu mér vel vakandi fram undir 8, og þá tók því nú varla að fara að sofa til að vakna aftur. Fer svo í skólann og næ í einkunnir, tala við krakkana og þannig, og kem svo heim. Og heima fæ ég aftur blóðnasir. Bullandi. Í rúman hálftíma! Til að toppa þetta er ég líka þegjandi hás og með stíflað nef. Stíflað nef og blóðnasir passa ekki vel saman. Ég tel það ástæðu verkjarins sem leikur um höfuð mitt núna. Stíflaðar ennisholur og læti. Svimi og hella fyrir eyrum. Ég er samt ekki veik! Ég ætla að mæta á æfingu á eftir. Og gera allt sem mig langar. Það er bara stíflað nef og blóðnasir sem eru orsakir alls ills. Ég þoli ekki á mér nefið.
þriðjudagur
Einkunnir
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|