laugardagur

Auður djúpúðga

Ó Guð. Var að finna gamalt dót úr skólanum, bækur sem við gáfum út og gamalt handavinnudót.. Fyrir framan mig er fáni sem ég gerði líklega í 4.bekk, og svo ritgerð úr 5.bekk... Bara nokkuð góð ritgerð miðað við aldur og reynslu, en ég hló og hló þegar ég las hana! Lokaorðin toppa samt allt:

LOKAORÐ.
Ég vona að þið séðu einhvers vísari um Auði Djúpúðgu. Hún var örugglega góðhjörtuð því að þegar hún kom til Íslands gaf hún öllum þrælum sínum frelsi. Mér finnst ég þekkja Auði Djúpúðgu betur eftir þessa ritgerð. Að lokum er ein frumsamin vísa um Auði.
Auður var kona á víkingaöld
hún ferðaðist mikið, 'enni héldu engin bönd.
Á bú'ennar voru köttur og önd.
Svona áfram nú niður með tjöld.
Dísa Bogga.
Það þarf varla að taka það fram að ritgerðin var um Auði djúpúðgu...;) Fékk sko 9,5 fyrir hana!:)