mánudagur

Lokaball:)

Þá er Dísa komin í bæinn og verður líklega fram í næstu viku. Fullt fullt af æfingum, tónleikar, námskeið, og útskriftir framundan. Og einkunnaafhending... Skrítið að geta ekki stressað mig upp vegna misheppnaðra prófa!

Það var nú bara mjög gaman á balli á miðvikudaginn! Eyjalögin fyrir ballið komu manni alveg í þjóðhátíðarfílinginn, sem og undarlegar tegundir af blöndu... Sísa mætti á staðinn með pólska vodkann sinn og skipaði mér að staupa með og svo sungum við alveg slatta...;) Skemmtum okkur mjög vel! Svo um hálf12 drifum við okkur niður í bæ og hittum þar Leif sem komst ekki upp í Grafarholt, á Lækjartorgi. Eins og við var að búast var mjög gaman á ballinu! Við þrjú alveg að fíla okkur í botn, og fullt af fólki að dansa við okkur:) Tókum pínu djæf og allt maður!:)
Á síðustu stundu ákvað Sísa svo að halda eftirpartý. Og það eru fáir betir til að bera út partýboðskap en ég... Ég fór af stað að hóa í vini og kunningja, en eins og flestum í minni móðurætt liggur mér dálítið hátt rómur á stundum... Mér brá allavega þegar ég heyrði fullt af einhverju fólki, hef ekki hugmynd um hverja, tala um partý á Digranesvegi... Enda komu eins og Sigrún sagði daginn eftir "svona 10 manns sem ég þekkti og svona 30 manns sem ég þekkti ekki..."
Þar sem margir koma saman er stuð. Og þegar búið er að vekja upp dauðþreytta litla bræður til að koma með gítar í partýið er enn meira stuð! Robbi að spila og við Sísa að syngja og allir að dansa og spjalla:) Og fleiri gerðir af pólskum vodka... Einiberjavodki, kirsuberjavodki, you name it... held að kirsuberjavodkinn hafi verið 6. tegundin mín þetta kvöld... Svo að ég var nokkuð hress þegar fyrri hópurinn fór og sá seinni kom (því partýið skiptist svona næstum þannig...) Það sama er samt ekki hægt að segja um gestgjafann sem sofnaði mjög fljótlega uppi í sófa... Gítarstemningin fór heldur ekki þó Robbi færi með fyrri hópnum því Kris kom í þeim seinni og tók upp gítarinn. Seinni hópurinn var samt rólegri og fólk fór að fara að fordæmi Sísu. Það var bara mjög kósí stemning og þægindi:)

Gaman að segja frá því en þrátt fyrir ljósaperuskort á baðherberginu pissaði sko enginn á gólfið!!! Einkahúmor í gangi...;)