þriðjudagur

Ég lít í anda liðna tíð

Já, titillinn passar ágætlega, langt síðan ég bloggaði síðast. Síðasta vikan í skólanum var náttla kreisí svo ég var alveg að fara yfir um síðustu dagana, svaf ekkert út af ritgerðarstressi, sat bara í tölvunni og leitaði að Íslandsvinum frá 1850-2005!
Annars var sorglegasti dagurinn á önninni á föstudaginn. Sá síðasti og það þýðir bara eitt: dimmitering. Já, krakkarnir sem eru að yfirgefa skólann fóru upp á svið og gerðu sig að fíflum. Eins og flestir vita hef ég haldið mig mjög mikið með '85 módelunum, en nú eru þau langflest að yfirgefa mig! Borðið mitt var með mjög flott sjóræningjaþema (klúðraðist reyndar dáldið því plankinn týndist), Leifur og fleiri voru með mjög fyndinn grískan harmleik, nokkrar stelpur sem ég þekki tóku despered housewifes þema og tóku Lárus rektor upp á svið, nudduðu hann og straujuðu jakkann og fleira, og gamla klukkuborðið sló í gegn með riverdansi! Tók slatta af myndum og stefni á að setja þær inn á veraldarvefinn við tækifæri.

Fór svo í tvítugsafmæli til Arthúrs um kvöldið. Var reyndar að keyra svo ég nýtti mér ekki góðmennsku hans varðani fría bjórinn sem baðkarið var fullt af en skemmti mér þó engu að síður mjög vel! Vá hvað sumir voru samt fullir þarna, sérstaklega Raggi og svo var Arthúr orðinn dáldið skrautlegur líka. Fór samt fyrir miðnætti því ég var búin að lofa að mæta á dimissionballið á Gauknum. Það var líka mjög gaman, þrátt fyrir vonbrigði með eitt. En vá, ég sleppti mér á dansgólfinu með Maju og Leif og það var geðveikt gaman! Gjörsamlega töpuðum okkur á tímabili!:) Vorum svo á röltinu, horfðum á stjörnuljósin af svölunum á Gauknum og röbbuðum við fólk. Svo skutlaði ég Maju, Einsa og Krissa heim um tvöleitið...

Ég komst í sauðburðarstuðið á laugardaginn! Mamma og pabbi voru ekki heima svo við vorum yfir búi og börnum og fylgdumst með að allt færi vel fram. Kíktum nokkrum sinnum uppeftir yfir daginn og í eitt skiptið var ein og hálf löpp komin út. Rollan líklega búin að vera að í einhvern tíma en allt virtist standa fast. Svo eftir smástund erum við Lilja komnar ofan í og ég fer að toga. Og út kemur þessi myndarlegi hrútur með risahorn! Svo við þiljum rolluna af og leyfum henni að kara, og eftir smástund kemur gimburin. Góð tilfinning:)

Svo var Nobili að syngja í skírn í gær, verið að skíra Kristínu litlu hennar Ragnheiðar Þórdísar (sem er í altinum). Og grillaðar pulsur á eftir og fínt:)

Það er reyndar eins og ég eigi heima niðri í kirkju þessa dagana. Nobili og undirleikur á sunnudaginn, tími og kóræfing í dag, undirspil, tónheyrn og kannski tími á morgun, og svo tími og kóræfing á miðvikudaginn. Nema ef ég sleppi æfingunni og mæti á útskriftartónleikana hennar Steinunnar úr listaháskólanum, langar reyndar á þá... En já, prófið náttla á fimmtudagsmorguninn svo núna er allt sett á fullt, ég þyljandi texta daginn út og inn og hugsa ekki um annað en inntónun og sérhljóðamyndun...

jæja, ég ætla að þvælast um veraldarvefinn í smástund áður en ég fer að sofa...