þriðjudagur

Maturinn heppnaðist bara vel þrátt fyrir svartan pipar í tonnatali! Held að bernaisesósan hafi gert útslagið.

Hvað í ósköpunum er svona gaman við að skjóta á mig? Ég varð hvað eftir annað fyrir hríðskotaárásum héðan og þaðan. Mishörðum, hörðustu skotin komu tvímælalaust frá Sölva. Ég er ennþá fúl út í hann! Afþví ég er þessi týpa hvað? Allavega. MH er alveg ótrúlega kaldur skóli. Ef ekki hefði verið fyrir hitastig undir frostmarki í enskustofunni í morgun hefði ég pottþétt sofnað. En nei, líkamshiti minn var við frostmark þegar tímanum lauk, og ég hélt skjálfandi niður í sjoppu með Einsa. Einsi er sannur herramaður og jakkinn hans hjálpaði blóðinu að hlýna aðeins. Ég veit ekki hvað þetta er, mér er alltaf kalt! Og svo verður mér ennþá kaldara rétt eftir að ég borða, allavega var ég orðin blá í hádeginu í gær. Bókstaflega.
Skrapp svo í Kringluna eftir skóla. �ætlunin var að ná í kortið mitt í bankann og fara svo á útsöluflipp! Kortið mitt er hins vegar ekki komið í bæinn, það er líklega ennþá á Hellu. Svo ég fór ekki á útsöluflipp í Kringlunni í dag. Þar hitti ég hins vegar Einsa og Fannsa og labbaði um með þeim. Örugglega sjö hringi. Svo eftir klukkutíma labb og spjall fylgdum við Fannsa út í strætó, og ég og Einsi löbbuðum meira. Núna ákváðum við samt að fara inn í búðir svona til tilbreytingar... Hann kommentaði á skóna sem ég var að spá í og ég á buxurnar sem hann keypti. Vá hvað er langt síðan ég hef farið með strák í búðir! Ekki síðan ég og Ólöf fórum með Magga og Ómari að kaupa föt á Magga, fyrir ári held ég! Allavega. Hann keypti buxurnar en ég ákvað að nota peninginn minn til að auka næringargildi ísskápsins. Leituðum lengi að Sage, sem var rétt fyrir framan nefið á okkur undir nafninu salvía, og svo kíktum við inn í ólíklegustu búðir til að leita að svörtu kerti. Ekki spurja. Eftir langa leit fundum við kertið og sögðum þessu búðarrölti okkar slitið. Takk Einsi og Fannsi fyrir góða kringluferð.
Þetta var ekki alveg skemmtilegi pósturinn sem ég lofaði er ég hrædd um... Ég þarf líklega að skrifa annan...