sunnudagur

djamm helgarinnar!!!

Já, þessi helgi að klárast eins og þær gera flestar. Þessi helgi hefur þó verið viðburðaríkari en margar sem hafa að einhverju leiti farið í að horfa út í loftið og telja hvíta bletti á nöglunum á mér...:-þ
Allavega. Ég fór til pabba í pítsu á föstudaginn, og fékk þar tvo diska sem síðan hafa verið í stanslausri spilun hjá mér! Musicology með meistara Prince sem samdi akkúrat tvö af mínum uppáhaldslögum (Purple Rain og Nothing Compares 2 U) og Mugimama með Mugison sem ég hef þegar lýst ánægju minni með hér á blogginu. Horfði á Idolið hjá pabba og var mjög stolt af henni frænsku minni sem var langbest þarna í diskóinu! Enda sást hvað pabbi hennar og bróðir voru ánægðir með hana:)

� gær var megalöng kóræfing!!! sex tímar!!! Vá!! Annars eyddum við Sísa deginum saman, elduðum hér og borðuðum, villtumst svo í Hafnarfirði í tæpan klukkutíma, náðum í Brynku og Gumma og fórum að punta okkur meira hjá Sísu. Þar náði �srún í okkur og við truðum okkur aðeins of mörg í aftursætið á rauða eðalvagninum... Fórum til Hjalta þar sem hann var að halda ammælið sitt hátíðlegt! Þar var fullt af fólki, MH-ingar, Flúðafólk, fyrrverandi vinnufélagar og fleiri! Þar var líka mjög ljúffeng en lúmsk bolla, með jarðarberjum og sólgleraugum! Þar var líka fólk í mismunandi ástandi, verst held ég að hún Steinunn Ylfa hafi verið en hún var ansi skrautleg og hávær... Eftir smástund, vorum við búin að tæma nokkur glös af bollu, freyðivínið sem meðferðis var var farið að minnka og Kristján var búinn að vera mjög örlátur á tékkneska bjórinn sinn. Þá höfðum við Sísa líka farið á trúnó inni á klóssti með fullt af fólki sem við þekkjum ekki!

Fórum svo á Gaukinn þar sem var frábært! Mér leið eins og ég þekkti alla á staðnum! Þar var bjórkvöld hjá Kvikmyndaskóla �slands, svo hann Ari Steinn var þarna, og með honum voru náttla Elísabet, og svo Leifur, Einar Þór og Siggi!!! Ég dýrka þá!!! Flakkaði á milli hópa, þess sem ég kom með og svo strákanna. Þetta var mjög viðburðarík nótt á margan hátt og ég ætla held ég ekkert að segja meira um það hér... Ég, Sísa og Einsi ákváðum allavega að fara upp úr þrjú. Það tók að vísu sinn tíma að kveðja, og við það var ég m.a. bitin í nefið! En heim fórum við á endanum.

Svo erum við Sísa búnar að vera í andlegu þynnkukasti í dag, lágum í rúminu til hádegis og fórum svo í Kringluna að máta milljón flíkur! Svo er ég að fara í langt og heitt róandi bað núna... Og athuga hvort ég nái að lesa e-ð af því sem ég á að vera búin með á morgun áður en ég sofna...

á skalanum 1-10:
Djamm 9,5
drykkja 8,5
drama 10
skemmtun 9
andleg þynnka 7