föstudagur

Ég hef ekkert að gera! Alveg öfugt við síðustu mánuðina í fyrra, þá hef ég nánast ekkert að gera núna! Jújú, ég fer á kóræfingar og söngtíma og flaututíma, og ég er á dansnámskeiði, og 21 einingu í skólanum, en samt hef ég ekkert að gera þegar ég er heima hjá mér. Nema fara í tölvuna. Ég er svo oft ein heima þegar ég kem úr skólanum, eða bara við Lilja, og Jóna Finndís kemur yfirleitt seint heim. Og hvað á maður að gera einn heima í íbúð uppi í Grafarholti???

En já. Fyrst að vika er búin af skólanum ætla ég að koma með smá um áfangana mína, svona hvernig þeir virðast vera...
Ens403: Enskar bókmenntir. Þessi áfangi hefur bæði galla og kosti. Kostirnir eru að hann er próflaus, og a.m.k. enn sem komið er er engin heimavinna nema bara að lesa í bókunum sem við erum með. Og þær eru ekkert hryllilegar eins og Charming Billy í 303... Ég hlakka alla vega til að fara í Jane Austin; Pride and Prejudice... Gallarnir eru aftur á bóginn að enska er bæði í fyrsta tíma á mánudögum OG föstudögum, og Betty kennir... Hef heyrt ansi margar sögur af henni, og ég var alveg að sofna í morgun...
Ens433: Irish Culture. �gætis áfangi, nema þegar Jón Hannesson lætur okkur horfa á heimildaþætti allan tímann... Þrír kennarar, áðurnefndur Jón, áðurnefnd Bettý, og svo hinn írski George. Kostirnir eru fyrirhuguð �rlandsferð, tónlistin og svo er Kristrún með mér (þegar hún er ekki veik). Próflaus áfangi... Gallarnir eru að ég fer líklega ekki til �rlands sökum sparnaðar.
Fra113: Kvikmyndir frá frönskumælandi löndum. Gerard að tala um myndirnar, og við að hlusta og horfa. Mjög rólegur áfangi held ég, búin að sjá e-ð af myndunum í frönsku síðustu árin, en núna skil ég frönskuna betur;) Þetta bætir mig held ég líka í hlustun. Próflaus áfangi, fullt fullt af fólki, Maja og hennar vinkonur,og svo Lóa og einhverjir. Gallar; skaraðist á við söngtímann minn, en búið að redda því. Veldur því hinsvegar að ég er í skólanum til hálf fjögur en ekki til 12:10 eins og áður en áfanginn fór í töflu...
Fra603: Líka Gerard. Einn tíma tölum við bara, annar fer í bókmenntir og þriðja tímann hlustum við á franska tónlist (erum í Edith Piaf núna) og tölum um hana. Próflaust og ég þekki nánast alla, Haukur, Leifur, Benni, Vala, hef verið með eila öllum í frönsku áður.
Isl353: Barna og unglingabókmenntir. Hvað er önn án íslensku? Mjög gaman, einingar fyrir að lesa gömlu uppáhaldsbækurnar!Próflaust! Ætlum kannski að gera svona bókaorm eins og í grunnskóla, og jú, það eru víst einhver verkefni, en þetta er íslenska svo það er í lagi :-D Bæði Halldóra og Bjarni (ekki Ólafs) kenna áfangann og virka fín, þó hann sé greinilega að byrja að kenna og skipuleggi kannski aðeins of mikið...
Isl322: Yndilsestur. Lesa sex bækur af lista yfir önnina og gera grein fyrir þeim. Ekki inni í töflu, engir tímar, bara hitta kennara nokkrum sinnum og gera grein fyrir bókinni. Próflaust.
Lik541: Fjallganga. Labba upp á e-ð fjall fjórum sinnum á önn. Mjög einfalt. Próflaust. Fullt af fólki með mér, Bryndís og Sísa þar helstar:-D
Sag263: �sland í augum útlendinga. Próflaust, en eigum að skrifa ritgerð sem gildir 50%... Samt. Skemmtilegur kennari, Einar, sem tókst allavega í sag103 að gera námsefnið skemmtilegt og áhugavert. Sölvi er líka þarna og e-ð af fólki.

Samtals 21 eining, 18 tímar í töflu, byrja korter í 9 tvo morgna og 10 tvo... Svo bætist svo sem við þetta söngur í mánudagsgatinu mínu og flauta einhvern tímann í vikunni, og svo æfingar þrisvar í viku. En ég held að ég hafi aldrei haft svona lítið að gera á önn, ég þarf ekki einu sinni að kaupa bækur! Allt til heima... Kannski hef ég bara svona lítið að gera af því ég er ein heima? Fyrir austan erum við náttla yfirleitt sjö plús amma og afi svo maður er sjaldan einn heima, og hjá pabba vorum við líka sjö og strákarnir yfirleitt komnir heim á svipuðum tíma og ég.

En nú þarf ég að drífa mig í Flúðaselið til hans pabba, ætla að borða þar hamborgara, leita í bókaskápnum og fara með bræður mína að styðja Lísu frænku í ædolinu. �FRAM L�SA!! Svo ætla ég að sjá til hvort einhver af vinum mínum nenni á bjórkvöld, það er ekki svo oft sem ég er í bænum um helgar, mig langar að djamma...:)