mánudagur

ég þoli ekki...

Ég þoli ekki eitt við sjálfa mig. Jú, e-ð fleira, en sérstaklega þetta eina. Ég byggi mér upp vonir, læt mig dreyma þangað til hlutirnir verða að hálfgerðri þráhyggju. Og svo þegar draumarnir sem ég byggi upp rætast ekki verð ég fyrir rosalegum vonbrigðum og leið og sár, mest út í sjálfa mig fyrir að leyfa mér að láta mig dreyma, og ákveð að gera þetta ekki aftur, að byggja mér ekki upp svona skýjakastala. Samt gerist þetta aftur og aftur, og alltaf verð ég svona sár út í sjálfa mig þegar draumarnir hrynja! Leið, sár, þreytt, og fæ þessa rosalegu höfnunartilfinningu. Svo tekur það langan tíma að komast yfir þráhyggjuna, ég festist alltaf í sama farinu og læt mig dreyma um hvernig hefði getað orðið, ef ég hefði ekki klúðrar hlutunum einhvern veginn. Því ég kenni sjálfri mér um hvernig fer, þó að yfirleitt hefði ég ekkert getað gert til að breyta málalokum. Þjást fleiri af þessu?