fimmtudagur

óformleg fundargerð

� gærkvöldi var GHA-fundur. Hann hófst um 18:00 þegar Guggí og Asíd (sem er reyndar hrifnari af Daisy nafninu og mun héðan af nota það í þessari fundargerð) náðu í Heggí og fóru inn í Hafnarfjörð. Þar var Carmínugrein Guggíar lesin. Þaðan lá leiðin á Kentucky og umræður hófust. Guggí lét hrifningu sína á Kentucky-sósunni óspart í ljós við aðeins minni fögnuð Heggíar. Af Kentucky var haldið í Bónusvídeó í Garðabæ þar sem chickflickmyndin Confessions of a teenage dramaqueen var leigð. � staðnum kom í ljós að Daisy hafði aldrei séð Ten things I hate about you og fannst öðrum meðlimum bandsins það ótækt. Næsta stopp var því í 10-11 þar sem meðlimir byrgðu sig upp af sælgæti...
Þegar forðabúrið var klárt hélt bandið í Birkiásinn heim til Heggíar þar sem hún setti áðurnefnda CTDQ í vídeóið. Og eftir það var hin ódauðlega Ten things dregin fram og kynnt fyrir Daisy.

Ritari þarf að fara í kennslustund, fundargerð kláruð seinna.