mánudagur

Ég þoli ekki...

Smá framhald hérna af ég þoli ekki... ég þoli ekki að vera blönk. OG þó ég sé kannski ekki alveg blönk núna, nýbúin að fá dreifbýlisstyrkinn, þá fer hann líklega að stóru leiti í þverflautuna... Hann kemur að vísu aftur í júní, en ég tími samt ekki að fara í útskrifarferðina sem allir í kringum mig eru að plana. Sat á borðinu og Bryndís og Lóa voru að spá í sólarlandaferðina, forðaði mér í tölvu og lenti við hliðina á Fannsa, Ellen og �nu sem eru að leita að upplýsingum fyrir kúbuferðina... En ég? Ég verð að binda vonir mínar við að Pragferð Nobili verði að veruleika... Get náttla huggað mig við að ég er ekki að útskrifast, svo þetta yrði ekki beint útskriftarferðin mín, en Kristrún og Hjalti eru svo sem ekki heldur að því...

Ég stefni á að spara og spara í sumar, vinna og vinna og eiga slatta af pening í haust, sem fer reyndar líklega að mestu leiti í skólann... Það er svona að vera að spara fyrir dýru námi... Ég hugsa að ég tími nú samt alveg að skreppa á þjóðhátíð...;) Það er að segja ef ég fæ frí, Alla þurfti að vinna í fyrra... Það væri nú samt svo týpískt, ef að ég kæmist ekki, að ALLIR færu núna, Alla ekki komist bæði árin sem ég hef farið og svo þyrfti ég að vinna en hún færi á þjóðhátíð... Ég verð bara að vona það besta...;)