föstudagur

Helgi

Jamm, strax að koma helgi aftur! Og ég verð aftur í bænum... Geri aðra tilraun til að fá einhverja til að djamma...;) Annars ætti það nú að reddast því hann Hjalti er að halda afmælið sitt hátíðlegt núna um helgina, og svo getur verið að við stelpurnar gerum e-ð. Ætla allavega að hitta Sísu á morgun:) Þarf hins vegar að vakna snemma á morgun, það er aukaæfing, þorraæfing einhver...

Ég er að spá í að leita mér að vinnu... Eitthvað sem ég get gert eitt kvöld í viku og kannski einstaka helgar. Má samt ekki vera næstum allar helgar vegna austurferða! Og náttla kóræfingar á mánudags og miðvikudagskvöldum og dansnámskeið á fimmtudagskvöldum... Það hins vegar byrjar náttla svo seint, ekki fyrr en hálftíu svo það myndi kannski reddast með hjálp frá Lúlla...;) Annars verður þetta bara að koma í ljós, en ef ég ætla til �rlands í ensku þá þarf ég e-ð að gera...

Til hamingju með daginn strákar, nú er ykkar mánuður byrjaður! Og það þýðir m.a: Afmælið mitt nálgast!!!:D Og þorrablót líka!!! Svo er líka árshátíð og margt fleira, svo nú nálgast djammmánuðir...;) En allavega. Til hamingju með bóndadaginn strákar mínir:*