mánudagur

Hálp!!!!!!!!!!!!!!!!

Andskotans helvíti! Afhverju verður allt svona flókið þegar ég segi við sjálfa mig að ég sé ákveðin??? Afhverju er koma svona tímabil alltaf með reglulegu millibili?? Lífið er skrítið inn á milli, en það er bara venjulegt hjá mér, en svo koma svona tímabil þar sem allt þarf að gerast og ég að vita ekki rassgat hvað ég er/á að gera??? Og það er í rauninni ekkert í bili sem ég GET gert til að einfalda hlutina heldur verður þetta allt að ráðast og veltur á öðrum!!!

Úff... nú verð ég að setjast niður og byrja að hugsa... En má samt í rauninni ekki hugsa því þá kannski "ákveð" ég að þessi leið sé betri en hinar og að ég ætli þá leið, en svo afþví þetta veltur á öðrum klikkar eitthvað á þeirri leið og ég verð sár út í sjálfa mig fyrir að hugsa of mikið og láta mig dreyma, og á meðan hafa hinar leiðirnar lokast...

Ég þoli ekki að vera margbrotinn persónuleiki!!!