Himininn var alveg ótrúlega fallegur á laugardagskvöldið! Það voru óteljandi stjörnur á honum og ekki eitt einasta ský! Svo marraði à snjónum þegar ég lagðist à hann, ég heyrði à læknum rétt hjá mér og ég lá bara à snjónum og horfði á stjörnurnar! Örugglega à hálftÃma, miðað við lÃkamshitann þegar ég kom inn... En þetta var svo þægilegt, ég gat hugsað svo mikið og það var svo rólegt og þægilegt à kringum mig! Það er að segja þangað til Tryggur fann mig... Fyrir þá sem ekki vita er Tryggur hundurinn minn. Hann er Ãslenskur og rosalega fallegur á litinn, svona óvenjulegur, næstum eins og tófa... Hann er lÃka ofvirkur, hann hleypur eins og ég veit ekki hvað, hann eltir á sér skottið, hann hoppar upp um alla... Hann hefur e-ð á móti þvà að ég gangi um à nælonsokkabuxum, þvà hann stekkur alltaf á lappirnar á mér og klórar og glefsar ef ég voga mér út úr húsi á þeim... Hann er ekki beint þessi týpÃski smalahundur þar sem hann er dauðhræddur við nautgripi og hættir sér ekki nálægt fé nema örsjaldan. Skynsamur hundur, kindur eru jú flestar með horn..:-þ Ég tók mynd af honum um helgina, og ætla að setja hér inn, en þarf fyrst að kaupa mér svona kapal til að tengja á milli sÃmans og tölvunnar...
Mamma og pabbi fóru semsagt á djammið á föstudaginn, fimmtugsafmæli à bænum svo við Lilja drifum okkur austur beint eftir skóla til að mjólka og passa krakkana. Gekk alveg ljómandi, fyrir utan stóran marblett sem lilja fékk frá Flugu Mangódóttur... Ég skil það ekki, Fluga lyftir ekki einu sinni löpp þegar ég þvæ eða set á hana, en Lilja fær þennan þrumumarblett...;) Það jafnast samt út, ég fékk þetta lÃka rosa högg à magann á fimmtudaginn... Þrettándabrennan var hjá okkur núna og auðvitað mættu jólasveinar og foreldrar þeirra... Eða svona næstum... Grýla og Leppalúði eru alltaf með stóran haus úr pappamassa og einhverju, og hafa verið sÃðan ég man eftir mér! Og svo à einhverjum pokaserk og einhverju. Ég var vÃst Grýla à þetta sinn, nauðsynlegt til að viðhalda vondu stelpu nafnbótinni sem MÃmir gaf mér, og leiddi hann Lúða minn á brennuna. Þar vorum við svo og göntuðumst við krakkana, nema hvað, einn kemur upp að mér og segir, þetta eru ömurlegir búningar og lætur hnefann vaða af fullum krafti à magann á mér! Strákur à 8.bekk! Hvað eru krakkar gamlir à 8.bekk? Hann verður 14 ára á árinu... Svo voru einhverjar megagelgjur sem reyndu að toga höfuðið af mér, kippa skegginu af jólasveinunum, potuðu eins langt og þær gátu upp à augun á mér, og brutu nefið á Leppalúða! Það er að segja grÃmunni... Þetta voru stelpur à 8.og 9. bekk, sem með þessu eyðileggja alveg stemmninguna! Eins og litlu krökkunum fannst gaman! Grýla var e-ð hrædd við lætin frá flugeldunum og datt aftur fyrir sig og rak upp skræki og e-ð þannig, og ein kom til hennar alveg svo einlæg, "Grýla, þú þarft ekkert að vera hrædd, þetta eru bara flugeldar!" og reysti mig upp og hélt à höndina á mér restina af sýningunni og þannig... Mjög gaman, fyrir utan þessa gelgjustæla à krökkunum... Og verulega auman maga...
mánudagur
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|