Ég ætla að skrifa lofgjörð um hana Mörtu mÃna. Hún Marta er nebbla alveg yndisleg manneskja sem á það alveg meira en skilið að fá fyrstu lofgjörðina á blogginu mÃnu.
Þegar ég kom à MH, lÃtil og saklaus busastelpa úr sveitinni, þekkti ég alveg rosalega fáa. Við vorum tvær úr bekknum, ég og Kristrún, og ég þekkti Kristrúnu svo sem ekkert gÃfurlega vel eftir þetta eina ár à Hvolskóla. (það hefur nú breyst aðeins...;) Svo þekkti ég Jón frænda, AldÃsi frænku mÃna, Ingu JúlÃu, Önnu Pálu systur hans Sindra (öll eldri og reyndari en ég, nema kannski jón) og svo Sindra. Nú hugsa kannski margir, hva, besti vinur hennar var á staðnum, hvað er hún að kvarta? En þegar ég var lÃtil saklaus busastelpa var ég alveg óstjórnlega feimin. Ekki við Sindra, heldur alla nýju vini hans sem ég hafði aldrei nokkurn tÃmann hitt. Fólkið á klukkuborðinu. Svo ég þorði varla að tala við Sindra fyrstu vikurnar à MH, nema à dönsku103... Allavega.
Hvað er það skelfilegasta sem komið getur fyrir lÃtinn hræddan busa sem aldrei hefur lært neina efnafræði og er á málabraut? Nú, að setja hann à NAT133 á fyrstu önn, þar sem hann þekkir engan og þorir hvergi að setjast til að vera örugglega ekki fyrir neinum! En à náttúrufræði kynntist ég froskahopparanum mikla, henni Mörtu. Marta byrjaði á að kenna mér á strætókerfið à ReykjavÃk. Það eru engir strætóar à Rangárþingi eystra, bara skólabÃlar... Svo bjargaði hún gjörsamlega efnafræðitÃmum, og kynnti mig fyrir fullt af fólki.
Guð, þetta á eftir að verða að heilsÃðu minningagrein hérna! Það sem ég ætlaði að segja get ég sagt à mun færri orðum. Marta er yndisleg og góð vinkona, vinkonan sem hélt partý m.a. à þeim tilgangi að fylla mig à fyrsta sinn, vinkonan sem hoppar eins og froskur, og þekkist á hlátrinum kÃlómeter à burtu :-þ Ég sakna hennar strax úr skólanum, og ætla að fara eins fljótt og ég get til Póllands svo við getum sungið þar saman à strætó...;) Og svo kemur þú à heimsókn à DrangshlÃðardal um leið og þú kemur heim à sumar er það ekki? Amma yrði allavega glöð...:D
þriðjudagur
Marta
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|