þriðjudagur

Mig langar að breyta blogginu mínu. Stefni á litabreytingu innan tíðar. Þeagr ég hef tíma.
Ég er ekki mjög dugleg við að blogga þessa dagana. Ég hef hins vegar verið dugleg að vakna á morgnanna, fara í sund, mæta í tíma, læra heima, og pússla saman stundaskránni minni. Ég virðist ætla að koma öllu þar inn, MH, söngskólanum, leikfélaginu, vinnunni... Get meira að segja vaknað snemma og farið í sund tvisvar til þrisvar í viku!
Fór á Strákana okkar með Leif áðan. Félagskapurinn var góður, og myndin var skemmtileg íslensk mynd, en það fór í taugarnar á mér hvað hún var svakalega illa döbbuð. Tónlistin var líka góð, en ég varð fyrir pínu vonbrigðum með hana. Ekki e-ð sem ég bjóst við út úr samstarfi Bang-Gang og Mínus, því þetta virkaði eiginlega eins og frekar venjuleg popptónlist! Kannski þarf ég bara að hlusta á hana aftur...
Á morgun er svo busadagur... Og busadegi fylgir busaball...;) Þetta verður magnað busaball! Við stefnum á brjálað djamm, Edda, Joke og ég, Hjalti ætlar líka, og Maja, og kannski Bryndís:) Ef einhver veit um partý má alveg láta okkur vita!:)
Allavega. Sund í fyrramálið, adios amigos!