fimmtudagur

Fór á útsölu í Skífunni og þetta er afraksturinn...;)
Green Day - American Idiot:
Diskur sem inniheldur Wake Me Up When September Ends og Bouleward Of Broken Dreams getur varla klikkað... Og hann gerir það heldur ekki:) Jesus Of Suburbia og Homecoming komu skemmtilega á óvart með aðeins öðruvísi stíl, þannig að diskurinn er ekki bara fjöldaframleitt popp/rokk, en besta lagið er nú samt Wake Me Up... Alveg held ég 4 stjörnu virði!
Scissor Sisters - Scissor Sisters:
Ó guð hvað ég get fílað mig við að hlusta á þennan disk! Enda varla hægt að búa sig undir djammið án Filthy/Gorgeous! Ekki þó að textinn eigi endilega við...;) Lovers In The Back Seat og Return To Oz eru líka mjög góð, en besta lag disksins er þó hið óviðjafnanlega Mary! Váá hvað það er flott! 3,5 stjörnur held ég, en slafar hátt upp í 4!
Sigurrós - Takk:
Ég er tiltölulega nýfarin að hlusta almennilega á Sigurrós. (Nema þá Dánarfregnir og jarðarfarir og Bíumbíum bambaló sem eru svo ótrúlega falleg...) Og Takk er góður diskur til að byrja á. Það góða við Sigurrós er að maður getur annað hvort sleppt því að hugsa og bara látið tónlistina njóta sín í eyrunum, eða hugsað og hugsað á meðan maður hlustar! Glósóli er það lag sem greip mig mest við fyrstu hlustun, en ég ætla að hlusta á þá alla aftur um leið og ég hef tækifæri. Takk fær 4 stjörnur.
Keren Ann - Not going anywhere:
Ef þið hafið ekki uppgötvað Keren Ann þá mæli ég með þessum diski. Og auðvitað Lady and Bird diskinum...;) Keren Ann er frááábær söngkona, hún er með svo flotta og sérstaka rödd! Svona hálfdjúpa, hálfráma en samt dáldið mjúka, og rólega rödd. Manni líður vel af því að hlusta á hana. Svona rödd vildi ég hafa... Diskurinn rennur í gegn og ég get eiginlega ekki bent á neitt ákveðið lag sem besta lag. Mæli samt t.d. með laginu Seventeen. Og By The Cathedral. Og Not Going Anywhere. Og... Þið vitið hvernig þetta heldur áfram... Keren Ann fær 5 stjörnur. Diskurinn 4,5, og svo fær Keren viðbótina fyrir að vera ótrúlega næs manneskja með enga stjörnustæla, og fyrir að hrósa Nobili...;)

Ég verð ein heima um helgina. Er að vinna á föstudagskvöld og svo á laugardag og sunnudag. Ef einhver vill gera e-ð endilega hafa samband:) Annars mun ég sökkva mér í tónlist, æfa mig, hlusta, semja, tónfræði, tónheyrn, tónlistarsögu... Ég elska söngskólann:) Finnst alveg frábært að vera þar! Það eru allir svo næs, manni líður næstum eins og bara heima hjá sér! Sko, ég elska MH, það vita flestir. En fyrstu kynni af söngskólanum eru samt þannig að MH bliknar allhressilega! Þar hefur framkoma skrifstofukvennanna pínu áhrif, og svo hvað MH er rosalega stofnanalegur. Að vissu leiti. Það gæti líka haft áhrif að ég er búin að vera þarna í þrjú ár og nýjabrumið líklega aðeins horfið af menntaskóla... Ég elska samt MH, því það er jú andinn sem skiptir máli en ekki umhverfið og útlitið. Svo að ég er nokkuð sátt við að vera bara á báðum stöðum:)

Farin að sofa í hausinn á mér áður en ég fer að rugla í sjálfri mér...