Mér tókst ekki að halda úti svona spjallboxi. Það skrifaði enginn þar svo það rann út. Væntanlega tilgangslaust að setja nýtt þannig. En nú veit ég ekkert hvað ég á að hafa hér til hliðar. Allar uppástungur velþegnar.
Helgin var bara skemmtileg! Fór í mjög skemmtilegt innflutningspartý hjá Lóu á laugardagskvöldið. Gaman að hitta gamla borðið. Komst enn betur að því sem ég vissi reyndar fyrir, Leifur er yndislegur, Fannsi er yndislegur, Sísa, Bryndís og Lóa eru yndislegar, og ég sakna Mörtu. Þið hin eruð líka yndisleg, en ég hitti ykkur nú oftar til að segja ykkur það.
Við, Edda, Joke, Lilja og ég, yfirgáfum hins vegar partýið þegar það var hálfnað til að fara út á Álftanes í leikfélagspartý. Því það borgar sig jú líka að kynnast fólki sem ER í skólanum... Þar var líka mjög gaman. Góð tónlist og afar hresst fólk:)
Ég var samt svo uppgefin þegar ég vaknaði á sunnudagsmorguninn. Ég sneri mér á hina hliðina og hélt áfram að sofa.
Dagga litla átti afmæli í gær. 17 ára. Það var svona pínu afmæliskaffi og svo flottur kvöldmatur. Þetta fína læri a la Jóna Finndís (Matreitt a la Jóna Finndís, hún heldur sínum báðum) með, eins og Magga kokkur mundi orða það, spennandi grænmeti, smjörsteiktum sveppum og bökuðum kartöflubátum, og svo bananasplittsís með heitri marssósu í eftirmat. Bjarney og strákarnir hennar eru í bænum svo að þau komu, og svo Árdís. Ég var svo södd þegar ég fór að sofa:)
Ég ætla að mæla með djasshátíð Reykjavíkur í vikunni. Sérstaklega þó Sacred Conserts eftir Duke Ellington með Kristjönu Stefáns, Kór Langholtskirkju og Stórsveit Reykjavíkur í Langholtskirkju á sunnudaginn. Þetta er geðveikt...;)
Tónleikarnir valda því hins vegar að ég kemst ekki austur um helgina. Það og það að þetta er vinnuhelgi. Ég er komin með smá heimþrá.
Í dag eru akkúrat þrjár vikur þangað til ég fer til Parísar!!!:D
mánudagur
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|