miðvikudagur

Ég er með BBC World í minninu á útvarpinu mínu. Í þættinum I'm Every Woman voru mjög áhugaverðar pælingar í gangi. Ef ég hefði ekki verið að taka þátt í singstar í fyrsta sinn á ævinni myndi ég þær kannski nógu vel til að skrifa þær hér...

iTunes datt út úr tölvunni minni. Tímabundið hlusta ég á Windows media player. Shuffle. Loving you's a dirty job syngur Bonnie Tyler á Heaven & Hell. Hefur ykkur ekki liðið þannig? "Þú ert asni og átt mig ekki skilið en samt get ég ekki hætt að hugsa um þig." Mér hefur allavega liðið þannig. Það lag sem samkvæmt talningu er oftast spilað er Pippin's song. Ég fæ tárin í augun. Svo koma litlu grænu karlarnir í bónus. Þeir eru víst út um allt að kaupa í matinn, því það er allt á betra verði þar. Svo segir Meat Loaf líka að himnarnir geti beðið. Eric Carmen syngur svo um hungruð augu. Ætli þau langi í töfrabökuna sem Oasis tala um? Merry Clayton segir já. Rainy days and mondays always get me down. Vissuðið að Caren Carpenter spilaði á trommur? Áður en hún dó úr lystarstoli. En Nikita mun aldrei vita það. Og ekki heldur hversu mikið Elton John þarfnast hennar. Hann á í erfiðleikum með að tjá henni tilfinningar sínar. Hann gæti sungið með Oasis í Wonderwall, There are many things that I would like to say to you but I don't know how...
10 handahófskennd lög.

Verð samt að koma því ellefta að. Textinn er svo steiktur. Viagra drap ömmu. Fyrst varð hún bleik, og svo varð hún blá. Viagra drap ömmu, og afi minn er alveg frá. Viagra drap ömmu. Fyrst varð hún bleik, og svo varð hún blá. Viagra drap ömmu. Nú er hún grá og afi minn er ennþá ofan á. Gaman að segja frá því en söngvarinn sem syngur þetta er bróðir gamla kennarans míns!

Kannski blogga ég of oft. Þeir sem blogga sjalndar virðast allavega fá fleiri komment...