Ég valdi rétt þegar ég lét með trega James Blunt diskinn frá mér í Skífunni um daginn. Pabbi brenndi fyrir mig Back To Bedlam MP3 diskinn:) Hann er mjög góður!
Horfði á Rómeó og Júlíu um helgina. Man hvað ég slefaði alltaf þegar ég sá Leonardo DiCaprio fyrir nokkrum árum. Titanic er snilld! Rómeó og Júlía er það líka. Ég var pínu tíma að tengja Shakespeare textann við nútímabúninguna og sviðsmyndina, fannst það dálítið hallærislegt fyrst, en svo gleypti sagan mig. Og tárin byrjuðu að streyma...
Það situr kanína fyrir utan gluggann. Hún er að horfa á mig. Búin að sitja þarna í smástund.
Það er skrítið hvernig draumar geta fengið mann til að hugsa. Í nótt dreymdi mig góðan draum, en samt vaknaði ég grátandi því hann fékk svo á mig. Samt leið mér vel í drauminum. Og þegar ég vaknaði. Bara líka furðulega.
Skrítið.
þriðjudagur
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|