Mandarína er fótbrotin. Önnur gimburin hennar líka. Mér finnst þetta mjög sorglegt, og ég á eftir að sakna hennar. Hin gimburin verður að öllum líkindum ásetningur. Ég þarf að fara að bonda við hana, ná tengslum.
Í dag bókaði ég flugmiða. Ég fer semsagt á undan megninu af frönskuhópnum til Parísar, hitti þar Maju og við skemmtum okkur frá mánudegi og á föstudag hittum við svo hina úr hópnum. Núna er ég að farast ég er svo spennt!!!:D
Ég verð líka í kór langholtskirkju í vetur. Fæ að mæta einu sinni í viku. Ég ætla að reyna. Mig langar að syngja Sacred Consert aftur, og taka þátt í jólasöngvunum. Svo er kórinn líka að fara til Prag, Budapest og Vínar í vor/sumar...
Í dag átti ég spjall sem ég er innst inni búin að bíða eftir dáldið lengi. Það var gott.
Í morgun vaknaði ég ekki við klukkuna, ég vaknaði við sms. Klukkan korter gengið í átta. Það var þægileg tilbreyting frá vekjaraklukkunni.
Áðan var síðasti þátturinn af Lost. Ég get ekki beðið eftir næstu þáttaröð, sjitt þetta var alltof spennandi! Var samt búin að fatta hvaða strák hinir væru að leita að...
Eiginlega er ég bara að blogga til málamynda. Nenni því eiginlega ekki akkúrat núna... Svo ég ætla að láta þetta gott heita í bili... Au revoir!
þriðjudagur
Gleði og sorg
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|