þriðjudagur

Ég blogga dáldið mikið um skólann. Eða stundatöfluna mína. Það er afþví að ég hef ekki tíma fyrir neitt annað. Ekki þegar ég er búin að setja allt inn. Ég ætlaði að hætta í kór Langholtskirku, en svo hringdi Jónsi í mig í gær og spurði hvort ég ætlaði ekki að vera með í vetur, ég gat ekki sagt nei. Fæ að mæta einu sinni í viku. Þar með fór eina kvöldið mitt í vikunni. En þetta verður svo gaman, allt þetta í vetur! Kannski dáldið erfitt í desember...
Söngskólinn er skemmtilegur. Fór í fyrstu opnu miðdeildina, eða fyrsta tímann í henni, núna áðan, og það er eins gott að vera í góðu formi! Við erum mjög mörg úr kórnum þarna! Ég, Maja, Vala, Andri og svo Hilmar. Mér fannst það fyndið.
Í dag heyrði ég uppáhaldslagið mitt fjórum sinnum í útvarpinu. Fix you. Ég fékk líka 20.000 krónu bókastyrk frá KBbanka. Ég fór líka bæði í tónabúðina og tónastöðina með Lilju. Vorum að skoða píanó. Það var miklu betri þjónusta í tónastöðinni.
Fimmtudagurinn í síðustu viku var slæmur. Til viðbótar við áður ritaðar hörmungar í lífi mínu þann dag rétti kona í strætó mér bækling um yfirvofandi heimsendi og kunningi minn spurði mig hvernig væri að vera í helvíti. Það var gott að fá Lúlla aftur.
Ég ætla að kaupa mér Takk. Heyrði Glósóla í gær og mér leið vel. Ekki það að mér hafi liðið illa, en ég fékk samt svona Fix you tilfinningu.