föstudagur

klukk

Já Sigurborg klukkaði mig í þessum eltingarleik sem hefur farið eins og eldur um sinu um bloggheimana síðustu daga. Og ég ákvað að drífa í að svara þessu áður en búið væri að klukka alla sem ég þekki...
1. Ég er með fæðingarblett á hægri rasskinninni. Reyndar ekki furðulegasta staðsetning fæðingarblettanna minna, en ég er ekki viss um að eins margir viti af þessum og þeim á milli fingranna á mér.
2. Þegar ég var yngri fékk ég stundum, eins og hinar stelpurnar, kyssuveikina. Veikin lýsti sér í endalausum hlaupum okkar á eftir strákunum, Gissuri, Magga og Bergsteini, og þegar við náðum þeim kysstum við þá eins fast og við gátum. Ég reyndi alltaf að ná Gissuri. Fyrsta dagbókin mín er full af ljóðum og textum þar sem ég lýsi m.a. ást minni á Gissuri.
3. Ég daðra. Ef mér líkar vel við manneskju kviknar á einhverju og ég byrja að daðra. Bara ósjálfrátt. Og alls ekki endilega í þeim tilgangi að hözzla. Get eiginlega ekki útskýrt þetta þar sem þetta er ósjálfrátt, en held samt að þetta sé mín leið til að fólki finnist auðveldara að kynnast mér.
4. Þegar ég horfi á bíómyndir eða sjónvarpsefni lifi ég mig stundum svo gjörsamlega inn í það. Ef einhver er að fara að gera eitthvað asnalegt fæ ég aulahroll, ef e-ð rómantískt er að fara að gerast ýmist naga ég neglurnar, faðma sjálfa mig (eða teppi eða bangsa eða einhvern sem er nálægt mér) eða vef hárinu í kringum puttana. Þetta gerist líka þegar ég er að lesa. Einu sinni þegar við vorum að horfa á Seppa og ævintýraland húsdýranna í skólanum, líklega í 7. eða 8. bekk, stóðu krakkarnir mig að því að naga á mér táneglurnar. Eftir það geri ég það bara heima hjá mér.
5. Ég trúi á geimverur. Og Guð. Geimverurnar eru úti í geimi og Guð á himninum. Það tvennt er aðskilið í huganum þrátt fyrir að á öðrum stað í heilanum líti ég á það sem sama hlutinn. Ég hef reyndar ekki pælt í því fyrr en núna þegar ég skrifa það! Alltaf lærir maður e-ð nýtt!

Jæja, ég hafði af 5 ný atriði sem ekki voru á 100 listanum mínum...;) Og núna ætla ég að klukka Hjalta, Joke, Mörtu, Uglu og Unu. Enjoy...;)