Þá er önnin svona nokkurn vegin komin á hreint. Ekki alveg samt, á eftir að fá söngtíma og undirleik. En skólinn allavega nokkurn veginn á hreinu. Alltaf svo gaman að lesa skólablogg;) Nei í alvöru talað, ég sé ykkur svo fá núna í skólanum að ég er bara að halda ykkur inni í MHlífinu:)
Ég sagði mig úr P-áfanganum, bara strax í byrjun annar. Er samt með 20 einingar, því ég sá spennandi áfanga sem passaði inn í töfluna... Svo er Maja líka þar svo ég ætti ekki að verða einmana:) Eftir fyrstu vikuna er matið svona:
ENS503: líklega einmanalegasti áfanginn. Enginn sem ég þekki mjög vel, bara fólk sem ég kannast við. En á nú eftir að bæta úr því þegar líður á önnina. Vonandi. Þetta er því miður ekki lengur eingöngu bókmenntaáfangi eins og þetta var fyrir bölvuð samræmdu prófin þannig að það er enginn Shakespeare eins og var, en alveg ágætar bækur samt. Og Eva Hallvarðs er ágæt.
ENS5B4: Ég varð nú að lesa einhvern Shakespeare! Reyndar bara búin að mæta í einn tíma (núna í dag) en virkar voða fínt! Wincie virkar þrusukennari, borgar sig definetly að læra heima fyrir tíma! Áfangi sem gerir rosalega mikið fyrir enskukunnáttuna, og svo skemmir ekki fyrir að Maja og ég getum spjallað aðeins:)
FRA233: París!!!:D Hvað get ég sagt? Undirbúningur fyrir Parísarferð með Eddu, Maju, Rakel, Rán, og fleirum!! Og kennararnir sem hafa kennt mér flesta áfanga í MH, Sigríður Anna og Gerard! Vá hvað ég hlakka til 21-24. okt:D
MYN153: Myndmennt. Vonandi verður maður slarkfær í höndunum eftir áfangann, þrátt fyrir að verða vitaskuld enginn snillingur á við Hermann Bonilla. Þetta er heilmikil vinna, en það er samt voðalega þægilegt að byrja daginn og vakna almennilega með blýant í hönd og á spjalli við Elínu:)
SPÆ403: Þarna hef ég aftur Elínu til að bjarga mér, byrjaði áfangann ein og leist ekki á blikuna! Isak talaði og talaði í fyrsta tímanum, á hraðri spænsku! Líklega með hefðbundnari áföngunum mínum þessa önnina.
STÆ313: Í dag svaf strákurinn við hliðina á mér djúpum svefni. Ég pikkaði í Einsa hinum meginn við mig og sagði honum að ég væri ekki langt frá því ástandi. Það var samt allt í lagi því ég var búin með dæmin sem átti að gera. Ég er samt ágætlega fegin að langi tíminn er ekki á morgnana. Eða, síðasti tími á föstudögum er nú lítið skárri... Allavega. Ég ÆTLA að vera dugleg í vetur og hækka meðaleinkunina mína í stærðfræði, jafnvel þó ég þurfi að drekka líter af kóki í hverjum tíma...
Já, svo er ég náttla búin með líkamsrækt, og þakka Sölva fyrir góða samfylgd í göngunni, Höllu og Siggu fyrir gott spjall og Robba fyrir góða skapið:)
Ég er búin að lofa bæði sjálfri mér og öðrum að vakna og fara að synda í fyrramálið, best að standa við það...
þriðjudagur
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|