mánudagur

Ég er orðin...

svo svakalega vön því að missa niður sambandið við vini mína um hásumarið að ég fatta ekki alltaf að ég sé með gemsa og msn! Eins ólíklegt og það nú er þar sem ég er nánast háð þessum hlutum á veturna.
Það eru til óteljandi aðferðir til að ná athygli þjónustufólks á veitingastöðum. Einn sló mig t. d. í afturendann um daginn til að vekja athygli á nýtæmdum diski. Viðkomandi, danskur ellilífeyrisþegi, náði varla að leggja frá sér hnífapörin áður en ég hirti diskana hans það sem eftir lifði kvölds. Mér er annt um afturendann minn og vil helst hlífa honum frá svona.

Rétt í þessu fékk ég flugu í höfðuðið. Bókstaflega. Ég held að hún ofsæki mig. Ef mér skjátlast ekki er þetta nákvæmlega sama flugan og sveimar um í bílnum mínum. Ég leit út eins og asni þegar ég var að keyra í vinnuna áðan, sveiflandi höndunum í kringum höfuðið á mér. Núna vitið þið að ég var að reyna að drepa flugu. Ansans kóngulóin sem laumaði sér inn í bíl um daginn og spann þar vef hefur ekki gert sitt gagn. Nema hvað. Í morgun vaknaði ég klukkan 6 þegar hún suðaði upp við eyrun á mér, feit og pattaraleg. Þaðan tók hún sig á flug og sveimaði í kringum nefið á mér í klukkutíma, þangað til ég fór á fætur og upp á hótel. Nú er hún komin aftur, og sækir svona líka í hornið þar sem ég sit. Ég ætla að sofa með flugnaspaðann í nótt.

Í ár verða engin almennileg töðugjöld. Til að sporna við unglingadrykkju verða "töðugjöldin" færð af Gaddstaðaflötum og inn á Hellu, þar sem þau hefjast kl.11 um daginn og lýkur 12 tímum síðar. Ekkert ball, engar tjaldbúðir. Þetta olli mér mikilli gremju þar sem ég kemst ekki í sumarbústað með fjölskyldunni og planið var að djamma í staðinn. Vandamálið við töðugjaldaleysi virðist þó ætla að leysast vel, stefnan er sett á partýhald í staðinn. Þarf að klára að ræða málin við foreldrana og svo að sjá vaktaplan, er ekki alveg tilbúin til að mæta á morgunvakt morguninn eftir... En þið setjið allavega stefnuna á sveitina um næstu helgi;)

Helvítis flugan er ofvirk, sesti ekki heldur flýgur suðandi hring eftir hring. Og um leið og ég tek fram spaðann hverfur hún!

Ætla að benda ykkur á gamlan skólabróður, hann Tilfinninga-Daða. Það vill svo skemmtilega til að hann er bróðir hennar Unu sem er akkúrat langduglegasti bloggari sem ég þekki þessa dagana...

Hviss.... FLugan sveimaði sinn síðasta hring í þessu jarðlífi rétt í þessu. You better not mess with me...