sunnudagur

Gangan á föstudaginn var góð. Hressandi. Útsýnið var alveg frábært, ég varð alveg áttavillt, og ég gat hugsað mikið. Setningu göngunnar á Halla pottþétt! "Ha, finna fallega laut þar sem við getum verið ber??"

Núna er ég með harðsperrur. Ég fékk harðsperrur strax á föstudaginn. Var stirð í rútunni! Varð að beila á partýinu þeirra Sindra og Hrólfs. Missti af geðveiku partýi, veit það, en gat ekki hreyft mig. Lá í baði og gat varla staðið upp! Og hverjum dettur líka í hug að halda partý á Seltjarnarnesi?

Fyrsta alvöruvaktin mín í Grillturninum á Sogavegi gekk bara nokkuð vel. Mér tókst meira að segja að steikja beikonborgara! Ísinn verður ennþá dáldið skakkur hjá mér, en ég get æft mig eins og ég vil og fæ að borða afraksturinn;)

Svo hélt Haukur partý í gær. Þriðja tilraun og heppnaðist bara nokkuð vel! Fámennt og góðmennt. Fimbulfamb er algjör snilld og bókin með svörin gefur réttu svörin. Ekki samt í fimbulfambinu. Nú veit ég að Skinur er samheiti yfir þúsund eðlur sem allar eru nánast útlimalausar. Mér fannst skýringin mín; fleirtölumynd af skina sem þýðir málmþynna, ennþá betri... Best var samt skýring Júlíu á Pekill: Notað í stað niðrandi orða þegar þú ert orðinn þreyttur á eklinum þínum, í stað þess að bölva honum kallarðu hann pekil.

Systir mín er svo mikill snillingur. Ég kom heim úr göngunni í fyrradag og síminn minn var alveg að deyja. Een, ég fann hvergi hleðslutækið svo ég hringdi í Lilju. Hún Lilja, hafði þá ekki fattað að síminn hennar var fullhlaðinn, og það væru tvö hleðslutæki heima, hún tók það eina héðan með. Svo segið þið að ég sé ljóska??