laugardagur

100 listinn minn.

1. Ég heiti í höfuðið á báðum ömmum mínum

2. Ég þoli ekki þágufallssýki

3. Ég þoli heldur ekki þegar fólk segir “að frosna”

4. Mér finnst gaman í skólanum

5. Ég blogga

6. Einu sinni skipti ég um bloggslóð

7. það var afþví að foreldrar mínir lásu bloggið

8. Foreldrar mínir lesa þetta blogg líka

9. Mér er alveg sama núna.

10. Bíllinn minn heitir Lúðvík

11. Hann er kallaður Lúlli

12. Ég á líka kind

13. Hún heitir Mandarína

14. Ég tárast yfir bíómyndum

15. Meira að segja þó þær eigi að vera fyndnar

16. Einu sinni ætlaði ég að verða fatafella

17. Það var þegar ég var fimm ára

18. Svo ætlaði ég að verða ballettdansmamma og eiga 100 börn

19. Ég ætla ekki að eignast 100 börn...

20. og ég kann ekki neitt í ballett!

21. Einu sinni var ég bitin í öxlina. Það var Marta.

22. Einu sinni var ég bitin í rassinn. Það var kind.

23. Einu sinni kallaði strákur á mig og sagði að vinur hans væri skotinn í mér

24. Þetta var á Dalvík.

25. Ég þóttist æla ofan í róluna

26. Samt fannst mér hann sætur

27. Ég var 9 ára

28. Einu sinni bjó ég á Blönduósi

29. Ég trúi eins og mér finnst best að trúa.

30. Ég ákvað þegar ég var þriggja ára að fara í MA

31. Ég er ekki í MA

32. Ég er í MH

33. Ég hef tvisvar farið til útlanda

34. En aldrei út fyrir norðurlöndin

35. Í haust fer ég hins vegar til Parísar!!:D

36. Ég er á móti styttingu framhaldsskólanna

37. Ég horfi á formúluna

38. Og fótbolta

39. Og handbolta

40. Og frjálsar

41. Mér finnst gaman að baka

42. Og mér finnst gaman að djamma

43. Ég hef hösslað út á skúffuköku

44. Ég er frekar hreinskilin

45. Stundum of hreinskilin...

46. Mér finnst gaman að syngja

47. Og syng mikið í bílnum mínum

48. Mér finnst líka mjög gaman að hlusta á tónlist

49. Og í rauninni flest sem viðkemur tónlist!

50. Ég lærði einu sinni á orgel

51. Og seinna á þverflautu

52. En nennti aldrei að æfa mig...

53. Flautukennarinn minn síðasta árið spurði mig reglulega að því hvenær samræðisprófin mín yrðu

54. Hann var ungverskur og meinti samrændu prófin

55. Vona ég...

56. Mér finnast Lost frábærir

57. Og despered Housewifes líka

58. Þegar ég sofna mjög þreitt slefa ég eins og asni.

59. Ég á lista yfir strákana sem ég hef kysst

60. Ég skirpti einu sinni á gólfið hjá langafa

61. Ég er ein heima

62. Ég hef farið á Nylonball. Það var í Njálsbúð og Í svörtum fötum voru aðalhljómsveitin.

63. Ég labba í svefni

64. Ég tala í svefni.

65. Ég var orðin 16 ára þegar ég drakk í fyrsta sinn. Það var vegna hópþrýstings.

66. Pési í bekknum mínum “dó” það kvöld og ég var ógeðslega áhyggjufull.

67. Ég hef aldrei reykt, en prófaði einu sinni næstum vindil!

68. Ég átti ímyndaða vini þegar ég var lítil. Svo talaði ég líka við trén í garðinum. Þau hétu Rauðhetta, amma og úlfurinn. Ósýnilegu vinirnir hétu Rauðhetta, Bláhetta, Bleikhetta, Gulhetta, Grænhetta, og Fjólubláhetta. Það var engin Brúnhetta því mér fannst brúnn svo ljótur.

69. Mér finnst gott að kúra.

70. Fyrsti kærastinn minn var Siggi. Það var í 8. bekk.

71. Ég er með ör fyrir neðan hægra augað. Ég var barin með hafnaboltakylfu. Ég er líka með ör á enninu. Ég datt af þríhjóli.

72. Ég á það til að detta asnalega.

73. Ég er lofthrædd.

74. Mér finnst rósavín gott.

75. Og ég sef vel í tjaldi.

76. Ég græt í hvert einasta skipti sem ég les Sossubækurnar.

77. Ég á auðvelt með að kynnast fólki. Ég á hins vegar erfiðara með að byrja að kynnast fólki.

78. Ég fæ stundum svakalega minnimáttarkend. En stundum finnst mér ég betri en allir hinir.

79. Ég á það til að tala dáldið mikið.

80. Ég er frekar feimin... Það trúa því samt ekkert margir...

81. Ég hugsa mikið. Stundum of mikið

82. Mér finnst gaman að fara í sund

83. Ég elska íslenska sveitaballatónlist. Og böllin!

84. Einhvern tímann ætla ég að gera e-ð merkilegt. Ég veit bara ekki alveg hvað.

85. Ég veit ekkert hvað ég á að gera eftir MH.

86. Ég er sannur Íslendingur, borða súrmat og drekk brennivín. Allavega einu sinni á ári.

87. Hafragrautur með súru slátri er samt í uppáhaldi allan ársins hring!

88. Ég fæ alveg hryllilega túrverki. Og ef ég tek vitlaus verkjalyf æli ég.

89. Einhvern tímann ætla ég að gifta mig.

90. Ég kom grátandi út úr samræmda stærðfræðiprófinu í 10. bekk. Fór beint út í búð og keypti tvo lítra af ís. Við borðuðum hann í skólabílnum.

91. Ég hef rifið kjaft við löggu og blótað honum í sand og ösku. Hann hló að mér.

92. Ég hlusta á Spice Girls, kann flesta textana með þeim og kann dansinn við Stop utanað. Stop right now, thank you very much..

93. Mér finnst gaman að kaupa inn. Og elda.

94. Einu sinni dreymdi mig brúðkaupið mitt fjórar nætur í röð. Því miður vaknaði ég alltaf áður en ég sá brúðgumann...

95. Ég hef velt mér nakin upp úr Jónsmessudögg. Það breytti engu, var bara kalt.

96. Ég hafði aldrei skrópað áður en ég byrjaði í MH og hitti Mörtu. Hún kenndi mér það...

97. Ég er í símaskránni.

98. Ég ætti að vera farin að sofa.

99. Ég ætla að fara að sofa.

100. Ég vil fá komment á þetta.