Í dag fattaði ég að verslunarmannahelgin byrjar á morgun. Þjóhátíð byrjaði semsagt í kvöld. Og ég ekki einu sinni búin að heyra þjóðhátíðarlagið og hlusta þó á útvarp á hverjum degi! Bætti úr þessum skorti í núna rétt í þessu, er ekkert svakalega hrifin. Fæ ekki þjóðhátíðarfiðring í magann, þetta er bara svona lala lag! Myndast samt örugglega stemning í brekkunni, en ég verð ekki þar. Og er eiginlega nokk sama, e-ð sem ég hefði aldrei trúað í fyrra og hittifyrra!!
Nóg um það.
Í gær sleit ég streng á gítarnum mínum. Bað mömmu að kaupa nýjan á Selfossi í dag. Hún hafði strenginn með, ætlaði sko ekki að fara að labba inn í tónlistarbúð og biðja um G-streng...
Og já Una, 12-14 ágúst? Vaktaplanið nær reyndar bara til 10., en ég verð að öllum líkindum að vinna...:( Er að vinna allflestar helgar, yfirleitt meira að gera þá heldur en virka daga og því betra að fá tveggjadagafrí í miðri viku... Er í einu þannig 8.-9., en ég hugsa að þið séuð báðar að vinna þá...:(
föstudagur
Ég aftur...
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|