miðvikudagur

Ég er búin að skrifa mjög skemmtilega og langa áramótapósta hér síðustu daga, en blogger er eitthvað uppstökkur og leyfir mér bara að birta þá sundurslitnu. Því miður. Þetta verður hins vegar skólablogg... Því rétt í þessu fékk ég stundarskránna mína! Fékk 18 einingar inn í töflu, og er nokkuð sátt, ennþá allavega... Sé til hvort það breytist eitthvað þegar tímalistarnir koma upp, hvort það er eitthvað sem ég er að deyja mig langar svo í....;) Gæti reyndar ákveðið að bæta við yndislestri því ég er ekki með neina íslensku í töflu... Allavega. Akkúrat núna er ég allavega í þessum áföngum:
Ens6B4
Fra703
Lat103
Líl121
Lík631
Sag203
Stæ313

Já, ég fékk bæði IB enskuna og frönskuna inn, svo ég er sátt! Auk þess byrja ég ekki fyrr en klukkan 11:10 á mánudögum, búin klukkan 12:10 þriðjudaga og miðvikudaga, byrja klukkan 10 á fimmtudögum og á föstudögum er ég í fyrsta og síðasta tíma, en engu þar á milli!
Var líka að tjékka hverjir yrðu með mér í tímum, og er með Einsa (ef hann byrjar að mæta...) í latínu, Maju og Kjartani í stærðfræði (já ok, Maja og ég gætum átt það til að tala aðeins, en Kjartan er nú góður í stærðfræði!), Jonathan í ensku, og Hauki í frönsku!

Vonandi verður þetta skemmtileg önn:)