Borg óttans er frábrugðin sveitinni að mörgu leiti. Þar þekkir maður t.d. alla í sveitinni og ef einhver flytur inn í samfélagið vita allir hvað hann heitir og flest um fjölskylduhagi og svo framvegis.
Ég hef búið hér á Kristnibrautinni í hvað, tvö ár? Svona fyrir utan sumarið. Og jú, ég býð fólkinu úr stigaganginum góðan daginn og þannig, en get ekki sagt að ég þekki neinn. Samt er blokkin nú alls ekki stór. Meira svona fjölbýlishús.
Áðan komst ég að því að nágranni minn úr næsta stigagangi er í MH. Búin að vera nágrannar í tvö ár og saman í skóla í einhvern tíma, og aldrei nokkurn tímann fattað það.
Lítill heimur.
mánudagur
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|