mánudagur

Helgin var góð! Föstudagskvöldið var frábært!!! Byrjaði í pitsu hjá pabba og fjölskyldu, fór svo í kveðjupartý til Guðrúnar Ágústu, og endaði í hittingi heima hjá Maju þar sem ég gisti svo. Fór ekki að sofa fyrr en um átta, því við töluðum svo mikið!
Var frekar þreytt í vinnunni, en dreif mig samt á umtalað Eyfellingadjamm á players eftir að ég lokaði sjoppunni. Brá dáldið þegar ég kom þar inn, eftir að elskulegur dyravörður hleypti mér inn þrátt fyrir að hafa séð skilríkin mín, því ekki einn einasti eyfellingur var í augsýn auk þess sem meðalaldur á svæðinu var líklega í kringum 50 árin... Lagaðist samt þegar á leið, en ég var samt svo geðveikt þreytt að ég fór heim í hléi.
Ég var reyndar mjög lengi á leiðinni frá players og undir sæng. Minn elskulegi Lúðvík sat nefnilega fastur úti á stæði í kópavogi, og festist svo aftur þegar ég var í ákafri leit að bílastæði hér fyrir utan Kristnibrautina. Og þar sat ég föst í rúman klukkutíma. Eða, ég sat ekki beint, ég hljóp út og tróð snjó og sparkaði snjó í burtu, og settist svo og reyndi að keyra, og endurtók svo örugglega 14 sinnum. Hafðist samt allt á endanum og ég komst þreytt og köld og blaut upp í rúm og sofnaði um leið!

Já, Sigurborg, Laufey, Maja og ég vorum í dag "kosnar" í stjórn Graduale Nobili. Það á vonandi eftir að ganga vel.

Ég bætti við alveg heljarinnar magni af tenglum. Þau Guðrún, Árni, Benni og Halli fá öll tengla yfir á sín blogg, sömuleiðis Joke, Jonathan og Roberta sem eru byrjuð að blogga á íslensku, og svo setti ég upp nýjan dálk fyrir börnin, Önnu Lovísu frænku mína, Lindu "bróðurdóttur" mína og svo sumarbarnið hennar Rósu minnar:) Njótið.

Nú er ég farin að sofa, skóli á morgun og helginni tókst nokkrun veginn að snúa sólarhringnum á hvolf. Sjáum hvort komandi viku tekst að rétta hann af.