fimmtudagur

Hafið þið einhvern tímann heyrt um heiftarlegt ástarsamband? Ég þurfti allavega að lesa tvisvar þegar ég talað var um það í tónlistarsöguglósunum, þar sem heift er nú frekar notað í neikvæðum tilgangi og, ja ég hef allavega aldrei heyrt það notað í þessu samhengi. En Berlioz og Harriet Smithson áttu semsagt í heiftarlegu ástarsambandi.

Annars er drugs, sex & rock'n roll ekkert nýtt! Allavega dó annaðhvert þessara tónskálda (sem voru væntanlega rokkstjörnur þess tíma) úr sýfilis og hitt varð geðveikt!

Var líka lengi að átta mig á fyrstu spurningunni í prófinu áðan: Einn svarmöguleikinn var Lablína sem ég hef sko aldrei nokkurn tímann heyrt um! Nokkuð ákveðin í að það gæti ekki verið svarið krossaði ég við eitthvað annað, en einhvern veginn passaði ekkert við spurninguna. Svo þegar ég var að lesa yfir prófið í 5 sinn fattaði ég auðvitað hvað þetta væri, laglína!

Annars er rólega helgin bara að verða að djammhelgi! Kveðjupartý annað kvöld og svo eyfellingadjamm með Pöpunum á laugardag! Og svo kóræfing á sunnudaginn... Hlakka til...;)