Mig dreymdi alveg frekar furðulega í nótt! Þetta voru tveir aðskildir draumar, báðir eiginlega dáldið súrir, sérstaklega samt sá seinni... Fyrri draumurinn innihélt latínu, kórsöng, rímur, og fullt af MH-ingum, sá seinni fjallaði að mestu um bæjarferð með Eddu, Maju og Sigurborgu. Innihélt m.a. Kúltúra, bilaðar klósettdyr, hóp af strákum sem ég þekki, ömmu mína (já, amma mín á Akureyri sat á kaffi Kúltúra á fimmtudagskvöldi), og steypan varð eiginlega mest rétt áður en ég vaknaði! En þá fór ég "niður" á neðri hæðina á kúltúr (það er engin efrihæð á kúltur er það? er það ekki hluti af steypunni??) að finna stelpurnar. Labbaði fram hjá þessum kunningjum mínum á leiðinni en þeir sáu mig ekki. Fór til stelpnanna og þá föttuðum við að Sigurborg var ennþá á klósettinu með biluðu dyrnar og fórum í leiðangur til að bjarga henni. Pössuðum okkur svo á bakaleiðinni að labba framhjá strákunum því ég vildi endilega sýna stelpunum einn af þeim en pössuðum okkur líka að þeir sæu okkur ekki. Don't know why. Nema hvað, þegar við komum aftur í hornið okkar háttuðum við allar og skriðum undir sæng sem var komin þarna og v0rum bara að búa 0kkur undir trúnó aldarinnar! Þá sé ég ömmu mína á borði á móti okkur og stekk upp að heilsa henni, og þá birtast strákarnir, þegar ég er á stuttermabol og náttbuxum, á kaffi kúltúr á fimmtudagskvöldi og við eitthvað með sæng og kodda!
Svo vaknaði ég og hristi hausinn... hvernig í ósköpunum getur mann dreymt svona steypu??
þriðjudagur
Draumar...
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|