Í nótt var ég andvaka. Yfirleitt þegar ég er andvaka er það afþví að ég hugsa of mikið. Það var líka þannig núna. Eða kannski ekki of mikið, bara of mikið miðað við það að ég ætlaði að vera löngu sofnuð. Þetta hugs mitt hafði samt held ég góð áhrif á mig. Ég allavega tók ákvörðun sem ég hef beðið eftir að taka lengi og ekki þorað því, og ætla núna að standa við þetta hugs mitt. Næstum eins og áramótaheit eiginlega. Nema það eru ekki enn komin áramót... Ég hélt að þetta yrði alveg hrikalega erfið ákvörðun, en þegar til kom var hún ekki svo erfið. Ég var bara búin að magna hana svona upp með því að geyma hana. Ég ákvað að prófa og eyddi smsi sem ég hef átt síðan í júní til að sjá hvort ég væri tilbúin. Ef ég hefði ekki getað það hefði ég ekki verið tilbúin í þessa ákvörðun mína, sem að mjög margir eru samt búnir að segja mér að taka. Og ef þið skilduð orð af því sem ég var að segja hér á undan eruð þið snillingar, en ég efast meira að segja um að Skinka og Sísa skilji þetta... Nú toppaði ég ruglið mitt.
Sjitt hvað ég er orðin bloggglöð allt í einu þessa dagana.
Núna eru bara áramótin framundan með tilheyrandi flugeldum og brennu. Og svo náttla Áramótaballið sjálft, með stóru á-i því þetta er það eina sem kemur til greina...;) Maður fer nú ekki að sleppa því eina virkilega góða sem kemur frá Hvolsvelli...;) Nei í alvöru, djamm með Eyfellingum getur ekki klikkað:)
miðvikudagur
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|