Það er ekta ég að slá öllu upp í kæruleysi í prófavikunni, fara að baka og djamma....
Fór með systur minni, mági og restinni af fýrunum í Hvíta húsið á laugardagskvöldið. Var ekki komin frá Seljavöllum þegar ég fór að sjá eftir að hafa samþykkt að keyra þessa vitleysinga, handbremsan öðlaðist "sjálfstæðan vilja" af og til og Palli fékk oft að sjá puttan fyrir að tala illa um elsku Lúðvík minn. Og þegar á Selfoss var komið var greinilegt hverjir voru með í för, fyrsta stopp var að skoða traktora...
Þegar við mættum í Hvíta húsið var enginn þar. Hljómsveitin Frelsi var byrjuð að spila, og fyrir framan sviðið stóður þrjár stelpur. Enda tók hópurinn stefnuna beint á barinn þar sem farþegarnir gleymdu hvernig þeir ætluðu heim og reyndu ítrekað að fylla dræverinn. Í staðinn dró ég systur mína út á dansgólfið.
Þegar Í svörtum fötum byrjuðu fjölgaði aðeins á dansgólfinu, og meira að segja Páll Eggert steig dans! Og ó hvað var gaman. Frá því að Jónsi og félagar hófu leikinn og þar til yfir lauk settist ég ekki niður. Söng með eins og vitleysingur, kannski ekki það gáfulegasta í heimi með matstónleikana á þriðjudaginn...
Eitt af því sem stendur upp úr frá kvöldinu er orgía í pylsuvagninum. Ein byrjaði upp úr þurru að feika fullnægingu og áður en langt var um liðið voru flestir farnir að stynja með henni. Ég hló samt bara eins og vitleysingur og forðaði mér út í bíl þangað til strákarnir væru orðnir saddir...
Ég er komin með stimpil á mig. Bökunarstimpil. I wonder why... ;) Held að allt hafi byrjað með skúffukökunni á þjóðhátíð. Og svo voru það tebollurnar í Þórsmerkurdjamminu... Það fyrsta sem Árni spurði allavega hvort ég væri byrjuð á jólabakstrinum (sem ég reyndar er, bakaði eina sort núna í vikunni...) og fýrarnir voru fljótir að fatta að það vantaði nestið...
sunnudagur
Einn tveir Selfoss...
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|