mánudagur

Einkunnir komnar í hús.
Ekki glæsilegar eins og stundum áður, en ég verð að vera sátt. Veit upp á mig skömmina... Það fór eins og ég bjó mig undir, ég féll í stærðfræðinni. Vill samt ennþá kenna misskilningi á próftíma þar um. Fékk svo 6 í spænsku, þar hefði ég mátt vera duglegri að skila verkefnum, held að aðalmálið sé að ég var í París þegar ég átti að taka fyrra munnlega prófið og svo gleymdi ég að skila einu skriflegu verkefni. 7 í myndmennt, sem ég er bara sátt við vegna fáránlegs vinnuálags og hvað ég get bara ekki unnið hraðar heldur en ég gerði í tímunum. Og missti af heillri viku...

Fékk svo 8 í skólasókn, 9 í ensku 503 og staðist í frönsku, líkamsrækt og ensku 6B4. Reyndar frekar fúl, Helga og Olga voru að tala um að gefa öllum göngugörpunum 10 en hafa greinilega hætt við... Annars fæ ég svo einkunn í IB-enskunni í vor, en við fengum að geyma hluta af munnlega prófinu okkar þangað til í janúar, tökum það þá með IB krökkunum og fáum einkunn í vor.

Þá lofa ég, ekki fleiri skólablogg fyrr en í fyrsta lagi í janúar!!!:)