þriðjudagur

Jólin alls staðar

Núna eru jólin. Þau eru víst alls staðar í kringum okkur. Allavega í kringum mig. Serían löngu komin á fjárhúsin, greinin mín komin upp, komið krem á mömmukökurnar, greinarnar út í kirkjugarð tilbúnar og farnar, ólakökur í dalli, mandarínukassi inni í búri, allt tilbúið. Enda er þriðji í jólum í dag. Jújú, þetta var nú allt tilbúið fyrir 6 á aðfangadag, við vorum fyrr í hlutunum heldur en stundum áður:) En ég meina, til hvers að eyða síðustu dögunum fyrir jól í algjört stress og brjálæði og þurfa svo að nota þessa þrjá frídaga til þess eins að ná sér niður eftir allt stressið? Er ekki betra að taka bara sinn tíma og hafa það notalegt í jólaundirbúningnum?:)

Allavega. Gleðilega hátíð allir saman og takk kærlega fyrir mig! Þessi jól eru búin að vera alveg býsna góð. Enda er held ég alltaf gott að geta losnað við stressið í borg óttans, sérstaklega eins og hún er búin að vera núna á þessarri önn. Já, ég er komin með skólaleiða, en það er nú bara ein önn eftir og þá veit ég ekkert hvað ég á að gera. Já, ég á eftir að sakna MH. Þrátt fyrir að þetta sé ógeðslegt hús, grátt og ömurlegt, og aldrei rétt hitastig þar inni. Een... Ég hef næstu önn til að fá leið á öllu hinu líka, svo að tárin bíða til vors...;)

Fór á ball í gær á Selfossi. Fattaði reyndar ekki að panta far hér fyrirfram en þar sem ég er nú "grúppía" fékk ég að fljóta með... Mikill aulahúmor í gangi á leiðinni, "úr buxunum" og "allt í glussa" voru algengar setningar... Og jú, mér tókst að kjafta því af mér að það eina sem ég gæti sagt á þýsku eftir ársnám væri "ich habe einen Kugelschreiber in meinem Lederhausen". Ég held samt að mér hafi tekist að toppa allt það þegar ég var að reyna að útskýra "sama gamla nallasystemið" fyrir þýsku vinnukonunum... "You know, nalli is a shortcut for a kind of a tracktor, international, so the nickname is nalli, just like the guys talk about their reindear instead of John deere, the brand they are importing..." Einhverra hluta vegna efast ég um að þær hafi skilið mig...

En á balli var mikið af yndislegu fólki. Nágranni minn ákvað það að hann hefði nú aldrei boðið mér upp á drykk, nú yrði breyting þar á og ég skildi fá eitthvað bleikt með röri að sötra, og tók svo að sér jakkann minn. Herramaður þar á ferð. Mitt fyrsta verk í hvíta húsinu var hins vegar að rökræða Liverpool-Newcastle leikinn við tvo gaura, Gauja og svo man ég ekki hver hinn var. Það er náttla augljóst að Leboy átti ekki að fá rautt spjald heldur Crouch, en hins vegar var tæklingin alltof sein hjá Leboy þannig að hann hefði vel átt gult spjald inni. Hins vegar átti alveg augljóslega að vera dæmt víti svona korteri fyrr þegar einn newcastle maðurinn rétt svo bjargaði á marklínu, en með hendinni. Um þetta rökræddum við í smá stund, og Liverpool er ekki einu sinni mitt lið! Amma mín hefði samt orðið stolt af mér, þar sem hún er að ég held mesti Liverpool aðdáandi á landinu. Allavega á Akureyri. Megninu af því sem eftir var af ballinu eyddi ég svo á trúnó við hina og þessa, yndislegt fólk sem bjargaði kvöldinu. Í alvöru talað, eitt af þessum trúnóum var akkúrat það sem ég þurfti og mér leið svo miklu betur eftir á að það var ekki fyndið!

Þrátt fyrir háu hælana tókst mér nokkurn veginn að halda mér standandi á ballinu, fyrir utan eina veltu þegar Tóti snéri mér í einhver hring og missti sjálfur jafnvægið og hinir fýrarnir viku sér undan og ég endaði á gólfinu með tóta ofan á! Sjitt hvað mér brá! En ekki hælunum að kenna! Hins vegar átti ég aulalegustu dettur jólana í dag. sjö níu þrettán. Stóð upp úr rúminu mínu í morgun og teygði mig, sneri mér svo eitthvað við og lappirnar beygluðust eitthvað út í loftið eins og ég veit ekki hvað og ég datt á hlið og endaði einhvern veginn með lappirnar upp í loft með tilheyrandi hávaða. Svo núna seinnipartinn var Ingólfur Freyr komin í Incredibles búninginn sem hann fékk í jólagjöf, og gat ekki farið í skó yfir hann svo ég bar hann niðreftir til ömmu að heilsa upp á gestina. Nema hvað, útaf rigningunni síðustu daga er stórt drullusvað á milli bæjanna og þegar ég ætlaði að víkja mér fimlega framhjá því tókst það ekki betur en svo að ég tók á loft og endaði flöt í þessari ógeeðslegu drullu! Og flaug svo aftur á hausinn þegar ég reyndi að standa upp, með barnið í fanginu! Ég var öll blaut í gegn, og allt drulluskítugt, nema hvað, litli bróðir minn slapp með ekkert stórann blett á hnakkanum og annan á öxlinni...

Jæja... Ég ætla að reyna að fara að gera eitthvað af viti svona einu sinni... Klára Harry Potter og blendingsprinsinn eða eitthvað... Hún er nú samt mun betri á ensku, allavega fyrstu 300 blaðsíðurnar... En samt gaman að bera saman þýðinguna og frummálið.

Bleh... Farin.