Þá er tónleikahrinu desembermánuðar formlega lokið. Búin að syngja á sjö tónleikum, tvisvar í sjónvarpinu og á einum fundi. Já, tvisvar í sjónvarpinu því það kom upptökumaður á Nobiliæfingu í gær...;)
Nobilitónleikarnir heppnuðust bara mjög vel! Fengum held ég allar pínu áfall í fyrradag þegar var bara búið að selja 14 miða á midi.is og settum allar í auglýsingagírinn, þó hún hafi ekki jafnast á við jólasöngvana um helgina...
Úff... Jólasöngvarnir! Hvað get ég sagt? Eivör og Garðar Thor klikka náttla ekki! Var algjörlega sammála einni úr kórnum sem sagði; Mér væri meira að segja sama þó hann gæti ekki sungið, það er svo frábært að horfa á hann! Sjæsen, maðurinn er fallegur! Hahaha... Og á skjánum hjá mér er mynd af mér og fleira söngskólafólki í faðmlögum, þar á meðal bróður hans...:)
Áðan bjó ég til lampa. Ég er mjög stolt af mér. Vona bara að hann springi ekki í loft upp þegar hann fer í samband... (innskot seinna: fór með hann til pabba og fékk hjálp við perustæðið, bara svona til að vera örugg:)
Þetta er kannski síðasta bloggið fyrir jól. Kannski. Á morgun fer ég austur í annríkið. Ætla samt að hitta Mörtu áður, hún var að lenda í kvöld. Marta, í fyrramálið vek ég þig eldsnemma;)
Ég á mér uppáhaldslag þessa dagana. Sum lög getur maður hlustað endalaust á, þetta er þannig. Nema hvað, diskurinn er mp3 diskur og geislaspilarinn spilar hann bara sem heild, fer hvorki áfram né aftur á bak. Ég er eiginlega komin með nóg af James Blunt en held áfram að hlusta útaf laginu mínu.
Ég verð að fara að klippa á mér neglurnar, get ekki lengur skrifað á lyklaborðið. Ef ég blogga ekki meira fyrir jól óska ég lesendum öllum nær og fjær
og farsældar á nýju ári.
Hafið það yndislegt yfir hátíðarnar
og hittumst heil innan tíðar:)
Jólakveðja,
Dísa skvísa:)

|