Í gærkvöldi kom ömmusyndrómið mitt fram. Ömmusyndróm felst í því að hafa alltaf meira en nóg af öllum mat. Þar sem Maja, ég og Bjarni erum ein heima buðum við í grill. Ég fékk svo uppskrift að bjórkjúkling hjá pabba og mamma mælti eindregið með bailysís. Afgangurinn er næstum einn og hálfur kjúklingur og tveir lítrar af ís.
Ég vildi hálfpartinn óska að ég gæti sagst hafa staðið sveitt í eldhúsinu allan daginn en nei. Kjúklingurinn var að vísu í klukkutíma á grillinu (tvo tíma í allt því við grilluðum fjögur stykki) en undirbúningurinn var korter og fólst að mestu leiti í að drekka bjór. Og að gera ís tekur hálftíma. Í mesta lagi. Eina vesenið var að fá kjúklinginn til að halda jafnvægi á grillinu, en við kveiktum bara einu sinni í...

(svona leit kjúklingurinn út á grillinu)
(Og svona leit hann út eftir grill...)
Í dag fékk ég mér göngutúr niður í bæ. Þegar ég labbaði yfir Austurvöll fékk ég frisbídisk í höfuðið. Það var örugglega mjög fyndið að sjá, en aumingja strákurinn sem henti disknum fékk hálfpartinn fyrir hjartað. Hann var voða sætur svo að ég hló bara. Og labbaði svo í burtu með eitt stykki kúlu á hausnum.Ég vildi hálfpartinn óska að ég gæti sagst hafa staðið sveitt í eldhúsinu allan daginn en nei. Kjúklingurinn var að vísu í klukkutíma á grillinu (tvo tíma í allt því við grilluðum fjögur stykki) en undirbúningurinn var korter og fólst að mestu leiti í að drekka bjór. Og að gera ís tekur hálftíma. Í mesta lagi. Eina vesenið var að fá kjúklinginn til að halda jafnvægi á grillinu, en við kveiktum bara einu sinni í...
(svona leit kjúklingurinn út á grillinu)
Það var svo ekki laust við að ég fengi egóbúst núna í kvöld þegar litli bróðir Guðrúnar tók á móti okkur Maju og bað um eiginhandaráritanir. Vissulega ekki í fyrsta sinn sem við skrifum nafn okkar á blað (í Kouvoula í Finnlandi eiga heilu árgangarnir áritaðar myndir) en samt sem áður upplífgandi. Sömuleiðis var ég elt af "paparazzi" á leiðinni heim, þegar einn um fermingu hljóp á eftir mér með símann sinn og smellti af í gríð og erg. Gott að byrja að venjast þeim núna, því þetta verður náttúrulega daglegt brauð þegar maður svo meikar það á endanum...;)
Núna stal ég svo Harry Potter 1,2&3 upp í herbergi, svo ég kveð í bili. Ykkar að eilífu:


|