Ég veit ég skulda ykkur fullt af þjóðhátíðarmyndum. Enda bara 9 dagar. Laugardagsmyndin er "shampoo auglýsingin" af Bryndísi. Þessi mynd minnir mig óneytanlega á að muna eftir að pakka eins og einni rúllu af klósettpappír ofan í bakpoka.
Sunnudagsmyndin er svo af Sísu í góðu stuði á laugardagskvöldinu. Snemma. Minnir mig á að hafa með húfu, bara svona ef það skildi rigna.
Mynd gærdagsins er svo af mér, og minnir mig á hversu ótrúlega drukkið fólk getur orðið. Þá er ég ekki að tala um sjálfa mig, en sjáið gaurinn fyrir aftan mig?
Fyrir daginn í dag er það svo mynd af stelpunum, Leó og Lalla. Sú mynd minnir mig á hversu ógeðslegt það er að blanda jagermeister í malt. Það er reyndar ekkert á myndinni sem minnir á jagermaster og malt, enda þarf ekki að minna mig á það.
Ég hef ekki farið á þjóðhátíð síðustu tvö árin, og er pínulítið hrædd um að ég sé búin að magna upp stemninguna í huganum og svo sé hún ekkert þannig. Svo skoða ég myndirnar, bæði þessar og á dalurinn.is, og jú. Hún er svona. Það verða allir að prófa! Ef þið komist ekki með Herjólfi þá var Flugfélag Vestmannaeyja að bæta við flugvél, og flýgur á kortersfresti, svo það er ekkert mál. Ég ætti að vera á prósentum...
miðvikudagur
niðurtalningin
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|