þriðjudagur

Horfi út í himinbláa nóttina...

Það er hálfgerður mánudagur hjá mér núna. Sit í vinnunni og horfi á sólina fyrir utan, ótrúlegt þetta veður síðustu daga! Meira að segja ég, sem ekki hef tekið lit síðustu 3 árin eða svo, er orðin súkkulaðibrún og fín. Ekki ætla ég að kvarta...
Óli frændi kom í gær. Fór með pabba á Fálkagötuna og hitti hann og Stebbu. Fór svo með pabba og Gesti Þór í ísbíltúr undir miðnætti... Fáránlega góð hugmynd! Endilega hringið í mig ef ykkur vantar ísfélaga. Hver sem er. Hvenær sem er.

Ég trúi ekki að ennþá séu eftir tveir tímar af þessum vinnudegi. Mér finnst ég búin að sitja hérna endalaust lengi.

Núna eru bara örfáir dagar í Roskilde. Það hefði orðið megagaman. Björk, Muse, Red Hot Chili Peppers, Mika, the Killers, the Who, Særún... Í staðinn pantaði ég far til Eyja í gær. Það verður ennþá skemmtilegra, Á móti sól, Í svörtum fötum, Dans á rósum, Hálft í hvoru... Að ógleymdum brekkusöng, Árna Johnsen, báli, hvítum tjöldum, flugeldasýningu, blysum, bjór, og fáránlega góðum félagskap! Endilega allir að drífa sig og koma með, ef þið efist eitthvað talið þá bara við mig, mér og Guðrúnu tókst meira að segja að selja Maju þjóðhátíð!

Jæja, ætli það sé ekki best að kíkja á mbl og athuga hvort Sindri sé búinn að skrifa eitthvað gáfulegt síðasta hálftímann...

Au revoir...