Uh, já blogger var með leiðindi í gær, vona að þetta komi núna...
Árshátíðin var í gær. Og mér til óvæntrar hamingju var hún nokkuð skemmtileg! Ég skal alveg viðurkenna það að einu ástæðurnar fyrir miðakaupum minum voru síðasta árshátíðin og verðið á miðanum.
Það tók auðvitað sinn tíma að klæða mig, mála mig og greiða og allt það. En þegar því var lokið gafst mér nú samt tími til að eyðileggja næstum augnmálinguna (það tímafrekasta) með því að setjast og horfa á Bráðavaktina. Það sem ég elska þann þátt út af lífinu! Útúrsnúningur. Vegna skorts á fyrirpartýi komu Joke, Roberta, Haukur og Sólrún hingað og við gerðumst mennningarleg, horfðum á listhlaup á skautum, borðuðum osta og drukkum hvítvín. Eða ég og Joke drukkum hvítvín, hin sulluðu í eplasafa. Svo var Meat Loaf settur á fóninn og svo var haldið á ball.
föstudagur
Árs
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|