Vá hvað það eru margir fallegir karlmenn sem keppa í listdansi á skautum!
Allavega. Haldið endilega áfram í umræðum í kommentakerfinu hér fyrir neðan, þetta hjálpar til við að rifja upp gamla og góða tíma!;)
Já, hér getið þið komið því á framfæri ef ykkur mislíkar eitthvað í fari mínu. Og hér getið þið svo sagt ef ykkur líkar eitthvað í fari mínu...
Annars ætla ég að vera grand á því og bjóða öllum lesendum á tónleika í Langholtskirkju klukkan 17:00 á sunnudaginn. Þar verður frumflutt verkið Psalmus 8 eftir Þórð Magnússon (f.1973) og Requiem e. Hreiðar Inga (f.1978) endurflutt. Flytjendur eru Kór Langholtskirkju og Graduale Nobili, einsöngvarar eru Ísak Ríkharðsson (drengjasópraninn með englaröddina) og séra Jón Helgi Þórarinsson og hljóðfæraleikarar eru Douglas A Brotchie á orgel, Elísabet Waage á hörpu, Eggert Pálsson á slagverk og Jón Helgi Þórarinsson á gítar. Ég mæli með að vasaklútarnir verði með í för því þegar Requiem var frumflutt fyrir ári síðan voru viðbrögðin svo sterk að ófáir brustu í grát, jafnvel fullvaxnir karlmenn!
föstudagur
Er ég eins og ég er?
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|