Ég elska Aidan í Sex and the city! Var að horfa á bónorðsþáttinn núna rétt í þessum skrifuðu orðum og ég ætlaði að fríka út! Að Carrie hafi losað sig við hann er ofar mínum skilningi! Og að fara í einhvern rússneskan ómyndarlegan listamann sem síðan bara ber hana, og þaðan aftur í Big sem er búinn að fara illa með hana síðan í fyrstu þáttaröð??
Já ok, ég er rómantísk í mér. Bónorðið hans Aidans var ótrúlega sætt. Ég er stelpan sem fór að gráta yfir Dirty dancing 2, og ég verð alltaf rauðeygð og grátbólgin eftir Titanic. En þannig er ég bara, og mér er fokking sama hvort það skemmir konseptið á bak við þættina að láta Carrie og Aidan enda saman, ég vil þau saman. Punktur.
mánudagur
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)



|